Bókin ehf - Antikvariat er fornbókaverslun í Reykjavík. Verslunin sérhæfir sig í þjónustu við íslenska bókasafnara og söfn, sem og bókasafnara og söfn erlendis.
Rekstur Bókarinnar ehf er hefðbundinn rekstur slíks fyrirtækis, verslun opin 5-6 daga vikunnar, þjónusta við viðskiptamenn, þ.á.m. bókasöfn hérlendis og erlendis, meðal annars með útgáfu bóksöluskráa sem dreift hefur verið til viðskiptamanna heima og erlendis.
|
Bókin ehf
Klapparstíg 25-27
101 Reykjavík
Ísland / Iceland
|
Netfang: bokin@simnet.is
Símar: +354 - 552 1710 // 867 9832 // 699 8692
|
kt. 470169-4869
vsk nr. 10715
|
Banki: 701-26-5521
|
Framkvæmdastjóri og eigandi: Ari Gísli Bragason.
Umsjón með netbókabúð: Ari Gísli Bragason. Aðstoð við netbókabúð: Eiríkur Ágúst Guðjónsson.
Metum bækur fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og tryggingafélög. Áratuga reynsla af mati á bókum.
Matsmenn: Bragi Kristjónsson, Ari Gísli Bragason og Eiríkur Ágúst Guðjónsson
|
Saga Bókarinnar
Fornbókaverslunin Bókin hf var stofnuð í Reykjavík árið 1964 og er því elsta starfandi fyrirtækið á þessu sviði.
Stofnendur voru þeir Guðmundur Egilsson, sem veitti Bókinni forstöðu fyrstu 14 árin, Stefán Oddur Magnússon forstjóri, Ægir Ólafsson forstjóri og fleiri heiðursmenn.
Árið 1977 tók Gunnar Valdimarsson frá Teigi við stjórn fyrirtækisins og með honum starfaði lengstum Snær Jóhannesson meðeigandi hans að fyrirtækinu, en áður hafði Ingvar Þorkelsson, kunnur maður í bókamannakreðsum starfað þar um árabil. Ari Gísli Bragason keypti Bókina ehf. á útmánuðum 1997 og hefur rekið hana síðan.
|
|