Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Einnar bóka höfundar. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Hanastél hugsana minna # 84685
Hanastél hugsana minna # 84685
6.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Ljómar heimur # 82039   [Forlagsband]
Friðrik Hansen

Ljómar heimur # 82039
Verð: 2.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #82039
   



Innihald
Ljómar heimur. Ljóð eftir Friðrik Hansen.
Friðrik Hansen var fæddur í janúar 1891 á Sauðá í Skagafirði. Friðrik ólst upp á Sauðá hjá foreldrum sínum, Christian Hansen og Björgu Jóhannesdóttur. Sauðárhjónin höfðu fremur órúman búshag; tímarnir erfiðir og börnin átta sem þurftu að fá mat og klæði. Snemma varð augljóst, að Friðrik væri miklum gáfum búinn. Það hamlaði honum ekki til muna að hann varð barnungur fyrir þeirri raun að missa sjón, því hann læknaðist aftur áður en langur tími leið. Til þeirrar reynslu vísar kvæði hans, Blindi drengurinn. Aðstæður meinuðu Friðriki ekki heldur að njóta skólagöngu. Hann sat í unglingaskóla, nýstofnuðum á Sauðárkróki, en innritaðist í Kennaraskóla Íslands haustið 1913 og lauk prófi þaðan vorið 1915.
Friðrik var ekki fermdur þegar hann byrjaði að setja saman vísur og festa þær á blað í litlu kveri. Og senn glímdi hann við ljóðagerð. Fyrstu ljóð hans sem birtust er að finna í handskrifuðu nemendablaði Kennarskólans. Þekktustu ljóð hans eru: Ætti ég hörpu, Ljómar heimur, Vor, Blindi drengurinn, Við sitjum hljóð og Vegavinnumenn.
Árið 1919 kvæntist hann Jósefínu Erlendsdóttur frá Stóru-Giljá í Húnavatnssýslu. Þau bjuggu fyrst eitt ár, 1920-21, að Garði í Hegranesi, en fluttust þá til Sauðárkróks. Þar beið Friðriks sá starfi sem hann hafði búið sig undir, kennsla barna og unglinga. Upp frá því allt til æviloka gegndi hann kennarastöðu á Sauðárkróki, en kenndi áður í Torfalækjarhreppi í Húnavatnssýslu.
Jósefína og Friðrik eignuðust átta börn saman en Jósefína lést árið 1937. Fimm árum seinna giftist Friðrik Sigríði Eiríksdóttur frá Djúpadal í Blönduhlíð. Þau eignuðust fjögur börn saman. Friðrik lést rúmlega sextugur að aldri.
Eftir Friðrik Hansen kom ekki út ljóðabók meðan hann var á lífi, en árið 1957 kom út safn ljóða hans og lausavísna undir nafninu Ljómar heimur. Bókin var endurútgefin 1982 undir nafninu Ætti ég hörpu.



Um bókina
Akureyri. Bragi Sigurjónsson og Gísli Magnússon, 1957.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Ljómar heimur # 82039
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce