Minn aðgangur
|
Skoða körfu
|
Ganga frá pöntun
Ítarleit
Forsíða
»
Vörulisti
»
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
»
Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt!
Die Eidbrüder # 81894
9.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband
Bláa bókin # 81837
[Forlagsband, kápa]
Ludwig Wittgenstein
Verð:
2.900 kr.
Afgreiðslutími:
1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál:
Íslenska
Ástand:
Gott eintak.
Vörunúmer:
#81837
Innihald
Bláa bókin. Eftir Ludwig Wittgenstein. Íslensk þýðing eftir Þorberg Þórsson. Með inngangi eftir Þorstein Gylfason. Ritstjóri Vilhjálmur Árnason.
Ludwig Wittgenstein er talinn til áhrifamestu heimspekinga 20. aldar. Áhrifa hans gætir einkum í þeim greinum heimspekinnar sem kenndar eru við hugann og tungumálið en verk hans hafa líka orðið innblástur listamönnum og skáldum, enda þótt um öguð og á tíðum torskilin heimspekiverk sé að ræða.
Bláa bókin er fyrsta verk Wittgensteins sem kemur út á íslensku og ef til vill það aðgengilegasta, þótt hugmyndirnar sem undir liggja séu flóknar og margbrotnar. Höfundurinn útbjó hana upphaflega sem fjölrit handa nemendum sínum í Cambridge og dró hún nafn sitt af blárri hlífðarkápunni, en Wittgenstein gaf ekki út nema eitt heilt rit í lifanda lífi, þrátt fyrir að hafa varið miklum tíma við skriftir og endurskriftir.
Bláa bókin tilheyrir síðari hluta ferils Wittgensteins og hér birtist í verki sú aðferðafræði sem hann taldi að endurspeglaði hið raunverulega hlutverk heimspekinnar: að veita meðferð til að aflétta hinum andlegu óþægindum sem heimspekilegar spurningar tjá. Það sem við teljum vera heimspekileg vandamál eru í raun og veru dæmi um það hvernig tungumálið leiðir okkur í ógöngur. Okkur hættir til að halda að orðin í málinu hafi einhverja algilda merkingu og við misskiljum málfræði þeirra, til að mynda þegar við glepjumst til að halda að það „að hugsa sé athöfn sambærileg við að tala og að skrifa og hljóti þess vegna að hafa staðsetningu í líkamanum. Til að leiðrétta misskilning á borð við þennan, segir Wittgenstein, ber okkur að huga að því hvernig orðin eru notuð í daglegu tali, því merking þeirra er fólgin í notkuninni.
Þetta nýja sjónarhorn á heimspekina og tungumálið er eitt af því sem hvað helst hefur haldið nafni Wittgensteins á lofti. Hann vekur athygli á því að málinu er ekki ætlað eitthvert eitt sérstakt hlutverk, heldur eru notkunarmátarnir margir og lúta ólíkum lögmálum. Dæmi um þetta, sem hann nefnir málleiki, eru meðal annars að gefa skipanir, að lýsa hlutum eða atvikum, að segja sögur eða brandara, að setja fram tilgátur, að heilsa, þakka fyrir sig og biðja bænir.
Þorsteinn Gylfason ritar ítarlegan inngang að bókinni. Hann fjallar meðal annars um þróunina í hugsun Wittgensteins og hið menningarsögulega umhverfi sem mótaði hann, auk þess sem hann fer í saumana á ákveðnum heimspekilegum atriðum. (www.hbi.is)
Um bókina
Reykjavík. Hið íslenska bókmenntafélag, 1998.
Tilkynningar
Látið mig vita um breytingar á:
Bláa bókin # 81837
Segðu vini frá
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir
Skrifa umsögn
Tungumál
24/11/2024
Bókin
©
bokin@simnet.is