Innihald Hátíðarljóð 1968. 26 óverðlaunuð ljóð.
Stúdentafélag Háskóla Íslands efndi til ljóða samkeppni í tilefni af 50 ára afmælis fullveldis Íslands. En þegar til kom þótti ekkert innsendra ljóða þess verðugt að hljóta verðlaun. Úrslit keppningar vakti athygli og varð til þess að Sverrir Kristjánsson hafði samband við skáldin sem þátt tóki í keppninni með það fyrir augum að fá leyft til að birta ljóð þeirra. Bókinni fylgdi atkvæðaseðill þar sem kaupendur bókarinnar voru spurðir að því, í fyrsta lagi, hvort eitthvert ljóð væri verðlaunavert og í öðru lagi, hvað ljóð væri bezt að hans dómi. Hér eru ljóð eftir Maríus Ólafsson, Kristinn Reyr, Hugrúnu, Árni G. Eylands, Jónas S. Jakobsson, Bjarni frá Hörgsholti, Þóroddur frá Sandi, Einar J. Eyjólfsson, Ragnar Jóhannesson, Þorsteinn Valdimarsson, H.J. Þórðarson, Lárus Salómonsson, Björn H. Björnsson, Ármann Dalmannsson, Jón G. Pálsson, Tryggvi Emilsson, Pétur Aðalsteinsson, Ragnar Jóhannesson, Kristján frá Djúpalæk, Hannes H. Jónsson, Katrín Jósepsdóttir og Benedikt frá Hofteigi.
|