Innihald Leir. Kvæði og stökur eftir ýmsa valinkunna hagyrðinga. Póstlistinn Leir er landsþekktur, hann hefur verið við lýði í tæpan aldarfjórðung. Á Leir skiptasta hagyrðingar á kveðskap sér til skemmtunar og vísur þær sem þar hafa birst skipta tugum þúsunda. Ýmsir af þekktustu hagyrðingum landsins hafa ort eða yrkja á Leir, t.d. Björn Ingólfsson, Björn Þorleifsson, Friðrik Steingrímsson, Hákon Aðalsteinsson, Hjálmar Freysteinsson, Jón Ingvar Jónsson, Óttar Einarsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson og Þórarinn Eldjárn. Í bók þessari birtist úrval af Leir og eru þetta allt ljóð á léttari nótum eða það sem kalla má gamanvísur. Í bókinni birtast um 600 vísur eftir 53 hagyrðinga.
|