Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Skáldverk eftir íslenzka höfunda »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Nokkur Amerísk Ljóð # 79963
Nokkur Amerísk Ljóð # 79963
39.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Eins og hafið # 6613   [Forlagsband, kápa]
Fríða Á. Sigurðardóttir

Eins og hafið # 6613
Verð: 1.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak
Vörunúmer: #6613
   



Innihald
Eins og hafið. Skáldsaga eftir Fríðu Á. Sigurðardóttir.

Já, það er alltaf eitthvað hér að gerast. Að sunnan berast tíðindi um að ríkisstjórnin nýja sé búin að blása verkfallsréttinum út í hafsauga og taka samningana úr gildi til þess að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér, kellingin í Englandi hafi unnið enn einn kosningasigurinn út á atvinnuleysi og aðra eymd, og páfinn sé í Póllandi að gera þar allt vitlaust, en hvað er það á móti því að horfa upp á læknisfrúna, hana Diljá skinnið, dóttur hans Jóns gamla læknis, stranda í miðju Ísland farsælda frón á sjálfan þjóðhátíðardaginn og komast ekki á flot aftur? Það var hörmulegt að horfa upp á. Þeir urðu að hjálpa henni niður af pallinum presturinn og skólastjórinn, sögðu að hún hefði fengið aðsvif. Sem kannski mátti svo sem til sanns vegar færa. Já, það var hörmulegt að horfa upp á sjálfa fjallkonuna sigla svona í strand á þessum merkisdegi. Og þeir hafa allir mikla samúð með Diljá, því að verða fyrir svona hremmingu á almannafæri er hreint ekkert gamanmál, þótt einhvers staðar á bak við samúðina leynist kannski smávipra.
Já, víst hefur gengið á ýmsu hér, og enn heldur Ágúst áfram sínu óguðlega ástafari með Svönu; iðkar sitt lastafulla líferni upp í opið geðið á bænum án þess að sýnast í nokkru brugðið. Nú síðast fréttist af þeim fyrir nokkrum kvöldum upp við Tjörnina inni á Dal. Að baða sig. Syntu þar bara allsnakin að sögn. Ekki svo mikið sem tutla utan á þeim. Og bærinn bíður með öndina í hálsinum eftir því hvað gerist næst, því nú hlýtur eitthvað að gerast, þetta getur ekki gengið svona, það hljóta að vera takmörk. En það gerist ekkert. Ágúst gengur um jafn glaðhlakkalegur og spaugandi og venjulega, og Svana heldur áfram að afgreiða í vefnaðarvörunni í kaupfélaginu eins og hún er vön, það er allt og sumt. Og ástin heldur áfram að trufla bæjarbúa, espandi, ágeng og spillt; en samt einhvern veginn lokkandi. Finnst sumum. Sem hafa enga sómatilfinningu.



Um bókina
Reykjavík : Vaka-Helgafell, 1986. 148 s. ; 22 sm.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Eins og hafið # 6613
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce