Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Skáldverk eftir íslenzka höfunda » Smásögur »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Maurilaskógur # 79896
Maurilaskógur # 79896
9.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Kvæði og sögur # 63119   [Innbundin]
Jóhann Gunnar Sigurðsson

Kvæði og sögur # 63119
Our Price: 9.500 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak í fallegu, skreyttu skinnbandi.
Product no.: #63119
   



Contents:
Kvæði og sögur eftir Jóhann Gunnar Sigurðsson. Önnur útgáfa. Helgi Sæmundsson hefur annazt útgáfuna.
Jóhann Gunnar Sigurðsson skáld fæddist í Miklaholtsseli í Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi 2.2. 1882. Foreldrar hans voru Sigurður Sigurðsson bóndi og k.h., Guðríður húsfreyja Jónasdóttir, bónda á Kársstöðum Ögmundssonar. Þau voru fremur fátækt bændafólk, höfðu eignast fimm börn og misst þau öll áður en Jóhann Gunnar fæddist.
Jóhann Gunnar ólst þó upp við þokkalegar aðstæður en þótti einrænn og dreyminn. Hann var lengst af veill fyrir brjósti og veikbyggður unglingur. Jóhann Gunnar hóf utanskólanám 1896, stundaði síðan undirbúningsnám hjá séra Sigurði Gunnarssyni í Stykkishólmi 1897, hóf nám við Reykjavíkurskóla 1898 og lauk stúdentsprófi með fyrstu einkunn heimastjórnarárið 1904. Hann hafði lengi haft áhyggjur af bágri heilsu sinni en skömmu áður en hann útskrifaðist kom í ljós að hann hafði veikst af berklum.
Að loknu stúdentsprófi hóf hann nám við Prestaskólann í Reykjavík og lauk heimspekiprófi árið 1905. Hann veiktist svo í nóvember á því ári, varð að leggjast inn á spítala og átti ekki afturkvæmt þaðan. Hann féll fyrir hvíta dauða einungis tuttugu og fjögurra ára að aldri, 20.5. árið 1906.
Jóhann Gunnar var um margt mjög dæmigerður fyrir hin nýrómantísku skáld. Hann orti gjarnan tregablandin og döpur ljóð en yrkisefni hans eru oftar en ekki dauðinn, ástin og hin óslökkvandi lífsþrá, enda lifði hann síðustu misserin í skugga dauðans. Auk þess sótti hann yrkisefni í dulúð íslenskra þjóðsagna. Þau skáld sem höfðu mikil áhrif á hann voru Jónas Hallgrímsson og Kristján fjallaskáld.
Jóhann Gunnar var afkastamikið skáld þegar haft er í huga hve skammlífur hann var. Auk ljóða hans samdi hann nokkrar smásögur, s.s. Bréf. Flest verka hans er að finna í bókinni Kvæði og sögur sem kom út að honum látnum, 1909 og var endurútgefin 1944. Þá kom út úrval ljóða hans árið 1957.



Product details:
Reykjavík. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. 1943.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Kvæði og sögur # 63119
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce