Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Áhugamál. » Garðyrkja - Skógrækt. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Reykjavíkingur # 79843
Reykjavíkingur # 79843
49.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Garðyrkjukver Schierbecks # 64452   [Forlagsband]
Hans Jacob George Schierbeck

Garðyrkjukver Schierbecks # 64452
Verð: 9.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak, fágæti.
Vörunúmer: #64452
   



Innihald
Garðyrkjukver. Samið hefur G. Schierbeck, landlæknir.
Georg Schierbeck landlæknir var hvatamaður bæði að stofnun Hins íslenska garðyrkjufélags og Garðyrkjuritsins. Einar Helgason garðyrkjustjóri ritar árið 1914 um Schierbeck, framan við bókina Bjarkir sem hann tileinkar minningu hans, á þessa leið: “Óhætt mun að fullyrða, að Schierbeck landlæknir hefur unnið garðyrkjunni á Íslandi meira gagn en nokkur einn maður hefur gert um langan aldur. Þótt hann væri hér ekki nema 11 ára tíma, þá kom hann, ásamt búnaðarskólanum, til leiðar þeirri vakningu í verklegum framkvæmdum sem orðið hefur hér á landi og undirbjó þær framkvæmdir, sem orðið hafa síðan. Eftir það hafa nýir menn komið til sögunnar, halda þeir áfram að auka við það starf, sem svo vel var byrjað. Schierbeck lét sér mjög annt um allt það, er miðaði til að efla efnalegt sjástæði vort og vellíðan. Sjálfur var hann hinn mesti atorkumaður, fullur af áhuga, starfslöngun og starfsþoli. Hann hafði á hendi umsvifamikið embætti, landlæknisembættið og forstöðumannsembættið við læknaskólann, og hafði auk þess mikið að gera við lækningastörf. Rækti hann þessi störf með dugnaði og samvizkusemi, en þó vannst honum mikill tími til að gefa sig við garðræktinni. Það starf hafði hann stundað í æsku, áður en hann byrjaði skólalærdóm sinn.
Litlu eftir að hann kom hingað, reisti hann sér mikið og veglegt hús og afgirti garð við húsið. Í þessum garði starfaði hann í sínum tómstundum. Gerði hann þar víðtækar tilraunir með trjáplöntur, blómjurtir og matjurtir. Síðan er þessi garður ein helzta prýði Reykjavíkurbæjar (gamli kirkjugarðurinn við Aðalstræti).
Í ritgerðum og viðræðum gerði Schierbeck sér mikið far um að vekja áhuga almennings á garðrækt. Hann skrifað Garðyrkjukverið 1891, (um matjurtarækt) og leiðarvísi um ræktun fóðurrófna.
Í Tímarit Bókmenntafélagsins skrifaði hann skýrslu um gróðurtilraunir sínar og í blöðin hugvekjur og leiðbeiningar í þessum efnum.
Árið 1885 gekkst Schierbeck fyrir stofnun Hins íslenzka garðyrkjufélags og var formaður þess í full 8 ár, þar til hann fór alfarinn af landi burt 1894.



Um bókina
Reykjavík. Ísafold, 1891.

Umsagnir
Þeir sem keyptu þessa bók keyptu einnig
Orð að sönnu # 76162
Orð að sönnu # 76162
Sálumessa # 70761
Sálumessa # 70761

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Garðyrkjukver Schierbecks # 64452
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce