Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Health and lifestyle. » Medical »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Á víð og dreif # 81729
Á víð og dreif # 81729
9.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Samræðissjúkdómar - Kvef # 50500   [Innbundin]
Ýmsir höfundar

Samræðissjúkdómar - Kvef # 50500
Our Price: 39.500 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Góð eintök í ágætu bandi.
Product no.: #50500
   



Contents:
Saman í ágætu bandi eru þessi rit um læknisfræði.
* Samræðissjúkdómar og varnir gegn þeim. Leiðbeiningar fyrir alþýðu, einkum farmenn eftir Guðmund Hannesson. Reykjavík. Stjórnarráð Íslands, 1920. Guðmundur Hannesson segir m.a. "Þó undarlegt megi virðast, þá má í raun rjettri telja áfengi eina helstu orsök samræðissjúkdóma. Aragarúi, ef ekki meiri hluti karlmanna, sem smitast af samræðissjúkdómum, hefir orðið fyrir því í ölæði, verið ekki fyllilega allsgáður. ..... Áfengið hefir nú þau áhrif á flesta menn, að þeim finnst þeir verða að miklum mönnum, hikið og feimnin hverfur, og eftir því sem drykkjuskvaldrið eykst, heyrist hin hvíslandi rödd samviskunnar og aðgæslunnar lakar og lakar. Hinsvegar vilja hverskonar ástriður æsast, og að lokum teyma þær unga og efnilega piltinn, blindan og viljasljóann, í faðm fyrstu skækjunnar, sem verður á vegi hans. Augun eru oftast algerlega lokuð fyrir þvi, að hún kann að vera bæði ljót, spilt og sjúk, stundum hálfgerður fábjáni (talið er að um 1/3 lauslátra borgarstúlkna sjeu í raun og veru hálfbjánar)
Að hafa afskifti af konum utan hjónabands, sýnist í fljótu bili eðlilegasta úrræðið fyrir þá, sem ekki geta kvongast. Því miður er margt við það að athuga. Ef leitað er til lauslátra stúlkna er við búið að ungi pilturinn kynnist lökustu stúlkunum, spilli öllu sínu innilegasta tilfinningalífi og geri sjálfan sig að verri manni, þó því sje slept, að vel má þetta leiða óreynda út í aumleg hjónabönd.
Þegar unglingspiltar komast á þroskaaldur og getnarðarkirtlarnir taka að starfa, brýst sæðið oftast út ósjálfrátt með nokkurra vikna millibili. Á heilbrigðum mönnum fer þetta nálega ætíð fram í svefni og vakna þeir þá oftast við drauma um kvenfólk og þvílíkt. Þetta þýðir venjulega ekkert annað en það, að nú er unglingspilturinn orðinn að fullþroskuðum karlmanni.
Ýmisleg nudd eða erting á getnaðarfærunum getur valdið því, að sæðið brjótist út og er þessu samfara kynferðisnautn. Tilviljun, fikt eða ilt fordæmi getur komið piltum á þetta, og svo verður það að vana eða jafnvel að megnri ástríðu. Svipaður óvani getur og hent kvenmenn. Sje mikið að þessu gert gerir það oft mennina magnlitla, sljóa og stundum skömmustulega og óframfærna. Þetta, meðal annars, leiðir til þess, að þeir hafa af þessu mesta samviskubit og jafnvel sálar kvalir, eru hræddir um að þeir fyrirgeri heilsu sinni eða drýgi einhverja óbótasynd – en geta þó ekki ætíð hætt þessum óvana! Getur þetta alt svo stöku sinnum leitt til einskonar veiklunar á sál og líkama, þunglyndis eða nokkurskonar taugaveiklunar, sjerstaklega ef um unglinga er að ræða eða mikið að þessu gert.
Enginn skyldi lá sjómönnunum, þó þeim hætti stundum til að rata út á einhverjar villigötur. Það er hægur vandi fyrir heimilisfasta sveitamanninn, að lifa blátt áfram án verulegra útúrdúra. Það eru fáar freistingar, sem mæta honum. Aftur er það ekki nema mannlegt og eðlilegt, þó farmaðurinn freistist til þess að gera sér glaðan dag, þegar hann loksins kemst í höfn."
* Um kvefpest (influenza). Gefið út á landsjóðs kostnað. Guðmundur Björnson landlæknir mun hafa tekið þennan pésa saman.
Hér er ekki verið að fjalla um neitt venjulegt kvef. Árið er 1918 og Spænska veikin herjar á landsmenn. Í niðurlagi kversins segir Landlæknir; " Ef einhver deyr úr kvefpestinni.
Þá er að gæta þess á hverju heimili, að kistuleggja líkið sem allra fyrst og láta jarða það, sem fyrst, í kyrþey.
Öll lík þeirra manna, sem látast af farandsóttum, eru háskalegir hlutir fyrir hina, sem eftir lifa."
* Álitsskjal læknadeildar háskólans um kvefpestina. Guðmundur Hannesson tók saman. Prentað að tilhlutun Stjórnarráðsins. Reykjavík, 1919.
Guðmundur Hannesson brýnir hér þjóðina til að fylgja fyrirmælum um almennar sóttvarnir, leggur fram fyrirmæli um einangrun heimila og skipa.
* Leiðbeiningar um dánarvottorð og dánarskýrslur (sbr. lög um dánarskýrslur 11. júlí 1911). Guðmundur Björnsson landlæknir hefir tekið saman. Reykjavík 14. september 1911.
Allt eru þetta merkileg kver og fáséð.



Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Samræðissjúkdómar - Kvef # 50500
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce