Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Tónlist - Hljómplötur - Nótur. »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Dönsk orðabók # 79884
Dönsk orðabók # 79884
29.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Tónlistin. Leiðarvísir til skilningsauka # 70569   [Óbundin]
Erik Abrahamsen

Tónlistin. Leiðarvísir til skilningsauka # 70569
Our Price: 3.900 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak.
Product no.: #70569
   



Contents:
Tónlistin. Leiðarvísir til skilningsauka. Eftir Erik Abrahamsen. Guðmundur Finnbogason íslenzkaði.
Í Tímariti Tónlistafélagsins 1.árg. 1.tbl. 1938 segir frá útkomu bókar Erik Abrahamsen. Þar segir "Á síðastliðnu hausti kom í fyrsta sinni út á íslenzku bók um tónlistina almennt. Var það Þjóðvinafélagið, sem fyrst réðist á vaðið um útgáfu slíkrar bókar. Höfundur hennar er dr. Erik Abrahamsen í Kaupmannahöfn, sá sem flutti hér fyrirlestra við háskólann fyrir nokkrum árum; en dr. Guðm. Finnbogason annaðist þýðinguna. Bókin flytur lesandanum á 177 bls. undirstöðufræðslu um flest er að tónlist lýtur, svo sem: byggingu lags, eðli hljóðfallsins, hljóma, hreina tónlist og hermitónlist, tónlistarform, sögu tónlistarinnar o. fl. Er hún því sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarvini, og ennfremur ættu allir þeir, sem hlusta á tónlistarflutning útvarpsins, hið bráðasta að fá sér hana, því margir munu þeir vera sem átta sig jafnlítið á symfóníum Beethovens og fúgum Bachs og útlend- ingar á dýrt kveðnum sléttubandavísum, og er það ekki vanzalaust, þar sem um jafnmikið menningarmál er að ræða og tónlistina.
Dr. Guðm. Finnbogason hefir með þýðingu sinni leyst stórt verk af hendi, þar sem hann af mikilli snilli hefir skapað fjölda af íslenzkum tónlistarorðum. Var þar áður ekki um auðugan garð að gresja, en þó ber að nefna að próf. Sigfús Einarsson hafði þýtt — og það ágætlega — mörg orð hljómfræðinnar, enda hefir G. F. haldið þeim í þýðingu sinni. Ég skal láta ósagt hvort öll nýyrðin muni festast í málinu, en eflaust munu mörg þeirra ná hylli tónlistarmanna. Væri óskandi að dr. G. F. lyki við hafið verk og fyndi góð þýðingarheiti á hinum erlendu tónlistarorðum, sem máli skipta og enn eru eftir.
Bók þessi ætti að verða kennslubók í öllum skólum með þroskaða nemendur og myndi þá nauðsyn hennar brátt koma í ljós. — Hafi stjórn Þjóðvinafélagsins og dr. Guðm. Finnbogason þakkir fyrir hana."



Product details:
Reykjavík. Hið íslenzka þjóðvinafélag, 1937.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Tónlistin. Leiðarvísir til skilningsauka # 70569
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce