Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Héraðssaga. » Austurland. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Dönsk orðabók # 79884
Dönsk orðabók # 79884
29.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar # 45049   [Forlagsband, kápa]
Helgi Hallgrímsson

Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar # 45049
Verð: 6.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #45049
   



Innihald
Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar í Fljótsdalshreppi. Eftir Helga Hallgrímsson.
Fljótsdalur er ein fegursta og kostaríkasta sveit á Íslandi. Yfir dalnum gnæfir Snæfell í sinni tign, hæsta fjall landsins utan jökla. Stórárnar Keldá og Jökulsá falla um dalinn í fjölda mikilfenglegra fossa, sem hafa rýrnað eftir Kárahnjúkavirkjun. Óskertir eru þó tveir af hæstu fossum landsins, Hengifoss og Strútsfoss. Í botni dalsins er Lagarfljót. Sveitin er víða skógi vaxin og þar hófst bændaskógrækt fyrst hér á landi um 1970.
Lýst er landslagi og náttúrufari í hreppnum og getið ábúenda á hverri jörð frá um 1800 til vorra daga og sumsstaðar lengra aftur í tímann. Því næst er saga hreppsins rakin í nokkrum köflum frá landnámi til nútíma. Bókin er 543 bls., með nærri 700 myndum, þar af yfir 400 litmyndum. Fljótsdalshreppur styrkti útgáfuna rausnarlega.
Fljótsdalur er vettvangur helstu fornsagna Austurlands. Valþjófsstaður hefur frá 12. öld verið eitt mesta höfuðból landsins, kirkjustaður og prestssetur. Þar var í margar aldir „rauðviðarskáli“ og glæsileg stafkirkja með útskorinni hurð sem kennd er við staðinn, og prýðir nú sýningar Þjóðminjasafnsins. Í Végarði er miðstöð félagslífsins og gistihúsið Fljótsdalsgrund. Í Valþjófsstaðafjalli er stærsta vatnsvirkjun lands­ins, Fljótsdalsstöð.
Á Skriðuklaustri er Gunnarshús, sem á engan sinn líka hérlendis. Þar var munkaklaustur á fyrri hluta 16. aldar, síðan sýslumannssetur, á liðinni öld bústaður Gunnars skálds, þá tilraunastöð í búskap og loks Gunnarsstofnun og Snæfellsstofa. Á Brekku var læknissetur frá 18. öld og sjúkrahús á fyrri hluta síðustu aldar. Á Egilsstöðum er nýlega stofnað Óbyggðasetur, gistihús við Laugafell og timburvinnsla á Víðivöllum ytri.
Á 19. öld og lengur voru Fljótsdælir í fararbroddi í félagslífi og framkvæmdum, settu m.a. upp strengi til að flytja hey af fjöllum, byggðu kláfa og hengibrýr, og „straumferju“, þá einu sinnar gerðar á Íslandi. Ýmsar listir hafa blómgast í Fljótsdal, einkum tónlist og skáldlist. Gunnar Gunnarsson rithöfundur var fæddur þar og uppalinn fyrstu árin, var síðan bóndi á Klaustri 1939–1948, og Guttormur J. Guttormsson skáld í Kanada átti þar rætur, auk margra annarra skálda og rithöfunda.
Bókarhöfundur ólst upp í Fljótsdal, en hefur síðan 1987 verið búsettur í Egils­staðakaupstað og er nú rúmlega áttræður. Hann hefur áður samið bókina Lagarfljót – mesta vatnsfall Íslands, sem Skrudda gaf út 2005, í sama broti og Fljótsdæla, og tengist efni þeirra á ýmsan hátt.



Um bókina
Reykjavík. Skrudda, 2016.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Fljótsdæla. Mannlíf og náttúrufar # 45049
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce