Contents: Sigurjónsbók. Afmælisrit til heiðurs Sigurjóni Árna Eyjólfssyni sextugum. Ritstjórn Brynjólfur Ólason, Haraldur Hreinsson og Stefán Einar Stefánsson. Á fimm alda afmæli siðabótarinnar fagnar séra Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur sextugsafmæli. Sigurjón er ekki aðeins einn helsti Lúthersfræðingur okkar Íslendinga, heldur einnig afkastamikill rithöfundur á sviði guðfræðirannsókna.
Sigurjón er einn fárra Íslendinga sem lokið hafa tveimur doktorsprófum. Á undanförnum árum hefur hann sent frá sér átta bækur um guðfræði, heimspeki, kirkjusögu og siðfræði auk þess sem fjöldi ritrýndra greina eftir hann hafa birst í virtum fræðiritum, bæði hér heima og erlendis. Þá er hann mikill unnandi djasstónlistar og lauk nýverið einleikaraprófi í saxafónleik frá Tónlistarskóla FÍH. Sigurjónsbók er tilraun til þess að heiðra prestinn, fræðimanninn og tónlistarmanninn á þessum merku tímamótum. Í bókina skrifa 20 fræðimenn, íslenskir og erlendir, um guðfræði, heimspeki, sagnfræði, bókmenntir og tónlist. Þeir eiga það allir sameiginlegt að þekkja vel til afmælisbarnsins og margar greinanna bera því vitni með einum eða öðrum hætti. Þessir rita greinar Sigurjóni Árna til heiðurs: - Andreas Müller, Bjarni Bjarnason, Bjarni Randver Sigurvinsson, Clarence E. Glad, Egill Arnarson, Guðmundur Andri Thorsson, Gunnar Harðarson, Gunnar Kristjánsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Haraldur Hreinsson, Hartmut Rosenau, Johannes Schilling, Kristinn Ólason, Maike Schult, Ólafur Páll Jónsson, Philippa David, Skúli S. Ólafsson, Soffía Auður Brigisdóttir, Sveinn Valgeirsson og Uta Pohl-Patalong.
|