Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Ljóð og rímur. »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Blóðhefnd # 84376
Blóðhefnd # 84376
3.900 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Vísur og kviðlingar # 83467   [Innbundin]
Erlendur Gottskálksson

Vísur og kviðlingar # 83467
Our Price: 3.900 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak.
Product no.: #83467
   



Contents:
Vísur og kviðlingar eftir Erlend Gottskálksson. Með æfiágripi og minningarorðum.
Þór Stefánsson ritar æviágrip og Valdimar Erlendsson minningarorð.

Í Eimreiðinni 23.árg. 1.tbl. 1917 er fjallað um Vísur og kviðlinga Erlends Gottskálkssonar. Þar segir: - Þó að í kvæðasafni þessu megi finna dáindis falleg kvæði (eins og t. d. "Við æfilokin" bls. 59, "Hugspár" bls. 61, "Úr eftirmælum" bls. 54, hið meinfyndna skopkvæði "Yfirvöldin" bls. 780. fl.), þá verður þó ekki sagt, að það fylli neitt autt skarð í bókmentum vorum eða beri vott um mikla skáldgáfu hjá höf., heldur aðeins, að hann hafi verið gáfaður hagyrðingur. Þetta virðist honum og sjálfum hafa verið ljóst, því svo segir í æfiágripinu framan við kvæðin: "Þess ber að geta, að Erlendur ætlaðist ekki til, að ljóð hans kæmust nokkurntíma fyrir almennings sjónir, því hann lét brenna, áður en hann dó, allstórt ljóðasafn, er hann átti í handriti. Það, sem hér birtist, er því ekki nema lítill hluti af ljóðum hans, aðallega nokkrar tækifærisvísur og eftirmæli, er geymst hafa í manna minnum og dagblöðum frá fyrri árum. Hitt alt mun algerlega glatað." Þar sem hér því ekki er um nema lítið hrafl af kvæðum höf. að ræða, og mikið af því eftirmælí, vantar sýnilega nægilega ábyggilegan grundvöll til að dæma um skáldskap hans yfirleitt. En ljóðakver þetta er heldur ekki útgefið í þeim tilgangi, að afla höf. þess sætis sem neinni blikandi stjörnu á bókmentahimni vorum, heldur eru ljóðmælin notuð sem undirstaða undir minningarmark, sem sonur og sonarsonur höf. hafa óskað að reisa honum. Og þetta hefir þeim tekist snildarlega vel. Því bæði æfiágripið og minningarorðin framan við kvæðin eru svo prýðilega rituð, að þau gefa bókinni gildi og gera hana að fögru minningarmarki. Þau sýna svo ljóslega, að Erlendur Gottskálksson hefir verið harla merkilegur maður í mörgum greinum, gáfumaður og smekkmaður, glettinn, fyndinn og þarfur maður í sínum verkahring. Og að hann hafi verið góður og skemtilegur heimilisfaðir, bera minningarorð Valdimars læknis sonar hans ljósastan vott um. Það er enginn hversdags meðalmaður, sem tekst að ná jafndjúptækri lotning og aðdáun barna sinna, eins og skín út úr minningarorðum læknisins. Það má því með sanni segja, að útgefendunum hafi tekist að reisa föður sínum og afa fagurt minningarmark með þessum bæklingi, hvort sem skáldlegt gildi kvæða hans er meira eða minna. Skáldskapurinn virðist aldrei hafa verið neitt aðalatriði í lífi hans, heldur hefir góð hagyrðingsgáfa verið eitt af mörgu öðru, sem honum var til lista lagt.



Product details:
Kaupmannahöfn. Þór. Stefánsson og Vald. Erlendsson, 1916.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Vísur og kviðlingar # 83467
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce