Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Þorsteinn Matthíasson »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Fornmanna sögur. 12. bindi # 79876
Fornmanna sögur. 12. bindi # 79876
165.000 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Óskar Clausen # 54821   [Forlagsband]
Þorsteinn Matthíasson

Óskar Clausen # 54821
Verð: 2.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #54821
   



Innihald
Óskar Clausen. Þorsteinn Matthíasson skráði tók saman. Kom út í bókaflokknum Brautryðjendur.
Óskar Clausen fæddist í Stykkishólmi 7.2. 1887. Foreldrar hans voru Holgeir Peter Clausen, kaupmaður og alþm. Snæfellinga um skeið, og k.h., Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja, alsystir dr. Jóns Þorkelssonar – Forna.
Bróðir Óskars var Arreboe Clausen, bílstjóri í Reykjavík, en synir hans voru Alfreð Clausen söngvari og tvíburabræðurnir og frjálsíþróttakempurnar, Haukur Clausen tannlæknir og Örn Clausen hrl., faðir Jóhönnu Vigdísar, söng- og leikkonu. Annar bróðir Óskars var Axel Clausen kaupmaður, afi Andra heitins Clausen, leikara og sálfræðings, og Michaels Clausen barnalæknis.
Óskar ólst upp í foreldrahúsum í Stykkishólmi en er hann var tíu ára flutti fjölskyldan til Reykjavíkur.
Óskar stundaði nám við Lærða skólann í þrjá vetur, stundaði verslunarstörf í Stykkishólmi við verslun Sæmundar Halldórssonar í 15 ár frá 15 ára aldri, var í siglingum og síðan kaupmaður á Kvíabryggju í Grundarfirði og sinnti verslunarstörfum víðar. Hann flutti aftur til Reykjavíkur 1949 og var þar síðan búsettur, lengi á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis, fyrir ofan kaffihúsið Prikið.
Óskar var mikilvirkur rithöfundur. Hann sendi frá sér 20 bækur, flestar um þjóðlífsþætti fyrri tíma, tók m.a. saman fjölda sagna af Snæfellsnesi og þá gjarnan um dulræn fyrirbrigði, enda sjálfur hallur undir dulræna reynslu og ófreskigáfu.
Óskar stofnaði Fangahjálp Íslands í ársbyrjun 1949 og vann allar götur síðan ötullega að bættum aðbúnaði og hagsmunum fanga á Íslandi. Hann mun um langt árabil hafa fengið til sín, leiðbeint og aðstoðað eftir megni, nokkuð á annað þúsund ungmenna sem fengið höfðu refsivistardóma. Þá hafði fangahjálp hans og Fangahjálp Verndar, sem frú Þóra Einarsdóttir stofnaði, árið 1960, umtalsverð áhrif á fjölgun skilorðsbundinna refsivistardóma hér á landi.



Um bókina
Reykjavík. Ægisútgáfan, 1973.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Óskar Clausen # 54821
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce