Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Skáldverk eftir íslenzka höfunda » Smásögur »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Sýniskver íslenzkra samtíðarbókmennta # 80017
Sýniskver íslenzkra samtíðarbókmennta # 80017
39.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Hagalagðar # 55218   [Óbundin]
Einar Þorkelsson

Hagalagðar # 55218
Verð: 3.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál:
Ástand: Gott eintak, áritað.
Vörunúmer: #55218
   



Innihald
Hagalagðar. Smásögur eftir Einar Þorkelsson.
Sögurnar eru; - Munaðarleysingjar ; Á banasænginni ; Lært hjá ömmu ; Kápa ; Mera-Grímur ; Röddin ; Ólíkindatólið ; Heimþrá.
Einar Þorkelsson fæddist að Borg á Mýrum 11.6. 1867, sonur séra Þorkels Eyjólfssonar og Ragnheiður Pálsdóttur. Einar var yngstur tíu systkina sem lifðu en önnur sjö létust í bernsku. Fjölskyldan flutti að Staðastað á Snæfellsnesi er Einar var um 8 ára. Faðir hans var um skeið heimiliskennari hjá Jóni Thorstensen landlækni, kenndi samhliða, ýmsum undir skóla og hafði jafnan pilta í námi, eftir að hann tók prestvígslu.
Einar nam hjá föður sínum og varð vel að sér. Hann bjó nokkur ár á Búðum, en síðar í Ólafsvík og Stykkishólmi og sinnti þá einkum kennslu. Árið 1905 kom hann til Reykjavíkur og vann í fyrstu að skriftum á Þjóðskjalasafninu sem dr. Jón Þorkelsson bróðir hans veitti forstöðu. Einar hafði einkar fagra og stílhreina rithönd líkt og mörg skjalaafrit hans votta.
Árið 1909 hóf hann störf á skrifstofu Alþingis og varð síðan fyrsti fastráðni skrifstofustjóri þess, 1914-23. Einar bjó í Alþingishúsinu ásamt eiginkonu sinni, Ólafíu Guðmundsdóttur, frá 1918 til 1923. Það er eina dæmið um íbúa í húsinu. Þau eignuðust tvo drengi meðan þau bjuggu þar.
Eftir að Einar lét af störfum hjá Alþingi hóf hann að sinna ritstörfum og komu frá hans hendi þrjú smásagnasöfn. Málfarið var hreint og kjarnyrt og sögur hans báru vitni næmum skilningi á „smælingjum“ jafnt í hópi manna sem dýra.



Um bókina
Reykjavík, 1928.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Hagalagðar # 55218
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce