Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Sagnfræði. Saga lands og heims. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Síðan þessi kona varð trúuð hefur hún verið til vandræða í húsinu # 81474
Síðan þessi kona varð trúuð hefur hún verið til vandræða í húsinu # 81474
3.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Nýja sagan I-III # 80908   [Innbundin]
Páll Melsteð

Nýja sagan I-III # 80908
Verð: 49.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Góð eintök.
Vörunúmer: #80908
   



Innihald
Nýja sagan I-II. Eftir Pál Melsteð. Allt sem út kom.
Páll var fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal, sonur Páls Melsteð amtmanns og fyrri konu hans, Önnu Sigríðar Stefánsdóttur Melsteð. Hann lauk stúdentsprófi frá Bessastaðaskóla 1834 og lifði lengst allra þeirra sem þaðan höfðu útskrifast. Hann fór svo utan og stundaði lögfræðinám við Kaupmannahafnarháskóla en lauk ekki prófi, heldur kom heim 1840, fór að búa á Brekku á Álftanesi og stundaði barnakennslu. Hann var settur sýslumaður í Árnessýslu í fjarveru föður síns 1845-1846 og aftur 1848-1849. Árið 1846 flutti hann til Reykjavíkur og varð þar forstöðumaður Landsprentsmiðjunnar. Hann var líka ritari konungsfulltrúa á Alþingi 1845-1849 og þjóðfundarfulltrúi Snæfellinga 1851 og var einn þeirra fáu sem ekki tóku undir mótmæli Jóns Sigurðssonar („vér mótmælum allir“), enda var faðir hans forseti fundarins. Á árunum 1849-1854 var hann settur sýslumaður í Snæfellsnessýslu og sat fyrst í Stykkishólmi, síðan á Búðum og loks í Bjarnarhöfn.
Árið 1855 fór hann aftur út til náms og lauk lögfræðiprófi í janúar 1857. Hann var settur sýslumaður í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1858-1862 og málaflutningsmaður við landsyfirréttinn 1862-1886. Alþingismaður Snæfellinga var hann 1858-1864. Hann var lengi stundakennari í sögu við Lærða skólann og fastur kennari 1886-1894. Hann stofnaði ásamt Þóru konu sinni Kvennaskólann í Reykjavík 1874 og kenndi við hann til 1889. Hann samdi allmargar kennslubækur í mannkynssögu sem lengi voru notaðar og endurminningar hans, sem hann hafði sjálfur skráð, komu út árið 1912. Bogi Th. Melsted, bróðursonur Páls, sá um útgáfu endurminninganna.
Fyrri kona Páls (30. desember 1840) var Jórunn Ísleifsdóttir (14. maí 1816 – 21. ágúst 1858), dóttir Ísleifs Einarssonar háyfirdómara og seinni konu hans Sigríðar Gísladóttur. Af átta börnum þeirra komust aðeins þrjú upp. Sonurinn Páll lést um tvítugt, Sigríður giftist ekki en Anna giftist Stefáni Stephensen klausturhaldara. Seinni kona Páls (13. nóvember 1859) var Þóra Melsteð (18. desember 1823 – 21. apríl 1919), dóttir Gríms Jónssonar amtmanns og konu hans, Birgitte Cecilie Breum. Þau voru barnlaus.
Góð eintök í fallega skreyttu skinnbandi. Fallegar bækur.



Um bókina
Reykjavík. Hið íslenzka bókmenntafélag, 1868-1887.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Nýja sagan I-III # 80908
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce