Innihald Eldhylur. Ljóđ eftir Hannes Pétursson. Fyrir Eldhyl hlaut Hannes Íslensku bókmenntaverđlaunin.
Klukkukvćđi (hluti)
Fyrir langalöngu reiđ ferđamađur einn um veg. Ţađ var á sumri. Hann kom í fornan eyđidal. Ţá hafđi sól sigiđ til fjalla. Hann steig af baki hesti sínum og lagđist til svefns í móalaut hjá reiđgötunni. Um nóttina dreymdi hann draum: Honum ţótti sem hann legđi hlustir fast ađ jörđu ţar í mónum og vćri ţá talađ til sín skýrum rómi. Ekki gat hann áttađ sig á ţví, hvort röddin barst neđan frá, ţar sem hann var staddur, ellegar úr annarri átt, en ţađ heyrđi hann ţó fyrir víst, ađ hún kom til hans úr jörđu. Hann mundi, ţegar hann vaknađi, hvađ viđ hann hafđi veriđ mćlt og fór međ ţađ stöku sinnum fyrir ađra síđar á lífsleiđinni. Í draumnum heyrđi hann sagt - eftir ţví sem nú er kunnugt: Um langa tíđ hef ég legiđ í ţessari mold. Ég var lögđ undir kjarald, gisiđ búsáhald til geymslu millum árstíđa. Annađ veifiđ kom einhver hönd sem lyfti mér úr jörđ og hringdi mér, svo hamrarnir undir tóku . . . hönd, hönd sem vissi hversu ég er gjörđ: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan! Ég nam á ţeim stundum, stopulum, ofar mold hvern styrk minn gamli hljómur veitir - og friđ er illvćttir, jafnt úr austri og vestri, höggva óttafullar sálir sem strá í tvennt. Ég, verndarklukka, kunngjörđi hátt yfir dalinn ţađ kall sem er skýrum stöfum í mig brennt: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan! Ég nam á ţeim stundum, stopulum, ofar mold stjarft auga, hlust sem titrar viđ og kné sem skelfur, ţegar alţekkt umhverfi gerist ógnvćnt snögglega, líkt og Djöflinum selt. Ég, verndarklukka, kunngjörđi hátt yfir dalinn ţađ kall sem var í málmsteypu mína fellt: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan!
|