Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Ritgerðir, ræður og bréf. » Ritgerðir, greinar, ræður »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
1974 Þjóðhátíðarljóð # 81898
1974 Þjóðhátíðarljóð # 81898
9.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Huganir. Safn ritgerða # 77324   [Forlagsband, kápa]
Guðmundur Finnbogason

Huganir. Safn ritgerða # 77324
Verð: 3.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #77324
   



Innihald
Huganir. Safn ritgerða eftir Guðmund Finnbogason.
Guðmundur Finnbogason er sjötugur þegar hann gefur úr Huganir sínar, safn af greinum frá fjórum tugum ára. "Þegar eg nú les þessar huganir í samfellu," segir hann í formála, "virðast mér þær raunar vera þættir í sömu viðleitni og að eg hafi altaf verið að klappa sama steininn." Enda er það mála sannast, að þó að viðfangsefni Guðmundar hafi nokkuð breyst á langri ævi, þá hefir viðhorf hans sjálfs og andleg reisn haldist óbreytt.
Hann er á sjötugsaldrinum eins bjartsýnn og hann var í æsku, eins fús. á að treysta skynsemi sinni til að glíma við hin dýpri rök eigi síður en dagleg fyrirbrigði eins og andlits farða ungu stúlknanna. Jafnfús virðist hann líka að trúa því, að það sem satt er og rétt, fagurt og gott hljóti að ganga með sigur af hólmi að lokum. Hann trúir því víst, að kvenhugsjón sú, er hann dregur úr djúpi fornaldarinnar, Áslaugareðlið, verði ríkara að lokum en hið ennþá eldra villimenskueðli konunnar, sem birtist í andlitsfarðanum. Og hver sem les lýsingu hans á Áslaugu á erfitt með áð verjast því að trúa með honum. Ef munurinn er nokkur, þá væri hann helst sá, að þar sem Guðmundur í eldri greinunum boðar fagnaðarerindi vísinda og mentunar, hetjudug og vinnugleði, í einu orði sagt: drengskap þeirra manna er vaskir eru og fara batnandi, þá glímir hann í hinum síðari greinum við enn dýpri rök í greinunum "Satt, fagurt og gott" (1936), "Trú og vísindi" (1936) og "Það sem af andanum er fætt" (1941), í þeirri von að honum takist að sjá hilla undir enn varanlegri verðmæti en annars eru augljós fyrir flestra manna sjónum. En andlega fjörið, fyndnin og hugkvæmnin og ratvísin í íslenskum bókmentum að fornu og nýju eru ávalt sjálfum sér lík í ritum Guðmundar. Fyndnari greinum en t. d. "Púkinn og fjósamaðurinn", eða "Þorskhausarnir og þjóðin" mun leitun á, en öllu gamni Guðmundar fylgir nokkur alvara. Leitun mun einnig vera að slyngari greinum á íslenska tungu en greininni "Um 'akta'-skrift", enda hefir hún með réttu lengi verið talin ein af fullkomnustu greinum Guðmundar. Hinsvegar hygg eg að íslendingar eigi ekki völ á betri siðgæðisprédikun en greininni um "Drengskap", enda sýnir Guðmundur hvergi betur en í henni, hvernig íslendingar liggja enn við sterka stjóra í fornöldinni.



Um bókina
Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja 1943.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Huganir. Safn ritgerða # 77324
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce