Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Íslenzk og norræn fræði. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Fjárbæklingur # 82728
Fjárbæklingur # 82728
39.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Fornaldarsögur Norðurlanda I-III # 82562   [Forlagsband]

Fornaldarsögur Norðurlanda I-III # 82562
Verð: 19.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Góð eintök.
Vörunúmer: #82562
   



Innihald
Fornaldarsögur Norðurlanda I-III. Guðni Jónsson og Bjarni Vilhjálmsson sáu um útgáfuna.
Fornaldarsögur Norðurlanda eru sögur sem, ólíkt Íslendingasögum, gerast í nágrannalöndunum fyrir landnám Íslands. Þó eru þar undantekningar, svo sem Yngvars saga víðförla, sem gerist á 11. öld. Sögurnar voru líklega allar ritaðar á Íslandi, á tímabilinu frá því um 1250 og fram undir 1400. Þó er hugsanlegt að einhverjar þeirra séu yngri.
Sögusvið fornaldarsagna er oftast á Norðurlöndum, en stundum berst frásögnin til fjarlægra og furðulegra staða. Oft blandast goðsöguleg eða yfirnáttúruleg öfl inn í frásögnina, svo sem dvergar, álfar, risar og galdrar. Á 17. og 18. öld voru fornaldarsögur taldar nothæfar sagnfræðilegar heimildir meðal norrænna fræðimanna, en á 19. öld komust menn á þá skoðun að lítið væri á þeim byggjandi fyrir sagnfræðinga. Nú er almennt litið svo á, að þó að sumar sögurnar hafi að geyma dálítinn sögulegan kjarna og að sumar persónurnar hafi verið til, þá hafi meginhlutverk fornaldarsagna verið að skemmta fólki, en ekki að segja sanna sögu frá fyrri tíð. Nýlega hefur þó verið lögð áhersla á að sögurnar geti varpað ljósi á íslenska þjóðmenningu á 13. og 14. öld, þegar þær voru samdar.
Sumar sögurnar fjalla um sögulegar persónur, eins og sjá má þar sem til eru heimildir til samanburðar, svo sem um Ragnar loðbrók, Yngvar víðförla og sumar af persónum Völsunga sögu. Í Hervarar sögu koma fram staðanöfn í Úkraínu frá árabilinu 150–450, og síðasti hluti sögunnar er notaður sem heimild um sögu Svíþjóðar.
Löngum hafa fornaldarsögur notið heldur lítillar virðingar og taldar hafa mun minna bókmenntagildi en Íslendingasögur. Efnið er ekki eins trúverðugt, persónulýsingar skortir dýpt, og efnið er oft keimlíkt, fengið að láni úr öðrum sögum eða þjóðsögum. Þrátt fyrir það ber ekki að vanmeta þær. Sumar sögurnar hafa að geyma ævafornar germanskar sagnir, svo sem Hervarar saga og Völsunga saga, þar sem er kveðskapur um Sigurð Fáfnisbana sem er ekki í Konungsbók Eddukvæða og hefði annars glatast, (sjá Eyðan í Konungsbók). Aðrar fjalla um þekktar hetjur eins og Ragnar loðbrók, Hrólf kraka og Örvar-Odd. Fornaldarsögur hafa mikið gildi fyrir þjóðsagnarannsóknir, því að í þeim er fjöldi sagnaminna (mótífa) úr margs konar þjóðsögum, sem annars eru engar heimildir um á Norðurlöndum fyrr en um miðja 19. öld. Þær eru einnig áhugaverðar fyrir þá sem rannsaka norræn fornkvæði, sem oft fjalla um sama eða svipað efni. Loks eru þær mikilvægar við rannsóknir á norrænum og þýskum hetjukvæðum, og einnig á Danasögu Saxa, sem var byggð á sömu fornaldarsögum og hetjukvæðum.



Um bókina
Reykjavík. Bókaútgáfan Forni, 1943.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Fornaldarsögur Norðurlanda I-III # 82562
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce