Innihald Aldaslóð eftir Björn Th. Björnsson.
Í þessari bók rekur höfundur ýsma þætti úr sögu myndlistarinnar með hliðsjón af því umhverfi og þeim tíðaranda sem verkin eru sprottin úr. Rætt er um almanakið ,,Gullnu stundirnar" sem talið er eitt af perlum evrópskrar myndlistar við lok gotneska stílsins, hið fræga málverk ,,Arnolfini og brúður hans" eftir Jan van Eyck, ógnvekjandi myndheim Hieronymusar Bosch í ,,Dauðasyndunum sjö", höggmyndir dagsstundanna eftir Michelangelo og barokkverkin ,,Dómur Parísar" eftir Rubens, ,,Batseba" eftir Rembrandt og ,,Mjólkurstúlkan" etir Vermeer. Frá 19. öld kynnumst við tilurð tímamótaverks Géricaults, ,,Flekinn af Medúsa" og hneykslunarhellu Manets, ,,Morgunverðurinn í skóginum". Stórverk Picassos, ,,Lífið" frá 1903, rekur svo lestina.
|