Innihald Óskar Clausen. Þorsteinn Matthíasson skráði tók saman. Kom út í bókaflokknum Brautryðjendur. Óskar Clausen fæddist í Stykkishólmi 7.2. 1887. Foreldrar hans voru Holgeir Peter Clausen, kaupmaður og alþm. Snæfellinga um skeið, og k.h., Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja, alsystir dr. Jóns Þorkelssonar – Forna.
Bróðir Óskars var Arreboe Clausen, bílstjóri í Reykjavík, en synir hans voru Alfreð Clausen söngvari og tvíburabræðurnir og frjálsíþróttakempurnar, Haukur Clausen tannlæknir og Örn Clausen hrl., faðir Jóhönnu Vigdísar, söng- og leikkonu. Annar bróðir Óskars var Axel Clausen kaupmaður, afi Andra heitins Clausen, leikara og sálfræðings, og Michaels Clausen barnalæknis.
Óskar ólst upp í foreldrahúsum í Stykkishólmi en er hann var tíu ára flutti fjölskyldan til Reykjavíkur.
Óskar stundaði nám við Lærða skólann í þrjá vetur, stundaði verslunarstörf í Stykkishólmi við verslun Sæmundar Halldórssonar í 15 ár frá 15 ára aldri, var í siglingum og síðan kaupmaður á Kvíabryggju í Grundarfirði og sinnti verslunarstörfum víðar. Hann flutti aftur til Reykjavíkur 1949 og var þar síðan búsettur, lengi á horni Bankastrætis og Ingólfsstrætis, fyrir ofan kaffihúsið Prikið.
Óskar var mikilvirkur rithöfundur. Hann sendi frá sér 20 bækur, flestar um þjóðlífsþætti fyrri tíma, tók m.a. saman fjölda sagna af Snæfellsnesi og þá gjarnan um dulræn fyrirbrigði, enda sjálfur hallur undir dulræna reynslu og ófreskigáfu.
Óskar stofnaði Fangahjálp Íslands í ársbyrjun 1949 og vann allar götur síðan ötullega að bættum aðbúnaði og hagsmunum fanga á Íslandi. Hann mun um langt árabil hafa fengið til sín, leiðbeint og aðstoðað eftir megni, nokkuð á annað þúsund ungmenna sem fengið höfðu refsivistardóma. Þá hafði fangahjálp hans og Fangahjálp Verndar, sem frú Þóra Einarsdóttir stofnaði, árið 1960, umtalsverð áhrif á fjölgun skilorðsbundinna refsivistardóma hér á landi.
|