Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Jón Ólafsson Indíafari »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Húslestrarbók. Helgidaga-prédikanir # 79871
Húslestrarbók. Helgidaga-prédikanir # 79871
9.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara # 60520   [Innbundin]
Jón Ólafsson Indíafari

Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara # 60520
Verð: 29.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #60520
   



Innihald
Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara. Samin af honum sjálfum (1661), nú í fyrsta skifti gefin út af Hinu íslenska bókmenntafjelagi, með athugasemdum eftir Sigfús Blöndal.
Jón Ólafsson „Indíafari“ (4. nóvember 1593 – 3. maí 1679) var íslenskur rithöfundur og ævintýramaður, frá Svarthamri í Álftafirði við Ísafjarðardjúp. Hann er hvað þekktastur fyrir ferð sína til Indlands sem hann segir frá í ævisögu sinni sem er einstök heimild um aldafar og mannlíf á þeim tímum.
Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson og Ólöf Þorsteinsdóttir. Af 14 börnum þeirra náðu þrjú fullorðinsaldri. Faðir hans dó úr blóðsótt þegar Jón var sjö ára.
Árið 1615 kom Jón sér um borð í enskt skip og samdi við skipstjórann um far til Englands. Þaðan lá leið hans til Danmerkur þar sem hann gerðist byssuskytta á herskipum Kristjáns IV Danakonungs. Fljótlega lá leið hans norður í Hvítahaf, til Svalbarða og árið 1622 sigldi hann suður fyrir Góðrarvonarhöfða, til Seylon sem nú kallast Srí Lanka. Síðar dvaldist hann í virki í dönsku nýlendunni Tranquebar á Indlandi. Árið 1624 var hann fluttur slasaður til Danmerkur eftir sprengingu í fallbyssu.
Tveimur árum síðar kom hann til Íslands aftur og var að Bæ á Rauðasandi. Hann kvæntist Ingibjörgu Ólafsdóttur og fór með henni heim í Álftafjörð, og bjó þá að Tröð. Þaðan héldu þau hjónin til Vestmannaeyja, þar drukknaði Ingibjörg, og sonur þeirra lést skömmu síðar. Aftur kvæntist Jón Þorbjörgu Einarsdóttur og eignaðist soninn Ólaf, sem nokkur ætt er frá komin. Með Þorbjörgu bjó hann á Uppsölum í Álftafirði og loks til æviloka í Eyrardal, á konungsjörð. Á gamals aldri ritaði hann ævisögu sína (um 1661). Frásögnin skiptist í tvo meginhluta og greinir sá fyrri frá dvöl hans í Danmörku og ferðinni til Svalbarða, en hinn síðari lýsir Indlandsferð hans. Þriðja hlutanum bætti sonur Jóns við og greinir hann frá ævi Jóns eftir heimkomuna til Íslands.
Í meginatriðum er hægt að staðfesta frásögn Jóns með samtímaheimildum. Sums staðar tilgreinir hann þó rangt ár eða misminnir um persónur og embætti. Hann var gæddur góðri frásagnargáfu og eru lýsingar hans á mannlífinu í Kaupmannahöfn og siðum framandi þjóða mjög líflegar. Ævisagan þykir einstæð heimild um mannlíf og herþjónustu í danska flotanum á 17. öld. Hafa Danir látið gera útdrátt úr henni sem lestrarefni handa börnum og unglingum í dönskum skólum.



Um bókina
Kaupmannahöfn. Hið íslenzka bókmenntafjelag, 1908-1909.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Æfisaga Jóns Ólafssonar Indíafara # 60520
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce