Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Þórarinn frá Steintúni »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Íslenzkir sagnaþættir I-II eftir Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi # 80023
Íslenzkir sagnaþættir I-II eftir Brynjólf Jónsson frá Minna-Núpi # 80023
39.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Útfall # 80014   [Óbundin]
Þórarinn frá Steintúni

Útfall # 80014
Verð: 6.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #80014
   



Innihald
Útfall. Ljóð eftir Þórarinn frá Steintúni.

Þórarinn fæddist í Stykkishólmi 17. desember 1902. Foreldrar hans voru Magnús Þórarinsson (Hálfdánarsonar bónda á Bakka í Bakkafirði) og Jórunn Sigríður Thorlacius. Þórarinn og Gunnar Gunnarsson rithöfundur voru því systkinasynir Þórarinn fluttist kornungur með foreldrum sínum til Reykjavíkur þar sem faðir hans stundaði um tíma rakaraiðn. Hann fluttist svo heim í fæðingarsveit föður síns að Steintúni í Bakkafirði, þar sem faðir hans gerðist bóndi. Magnús faðir hans lést er Þórarinn var aðeins 7 ára gamall. Móðir hans bjó áfram með börnin sín, fyrst í Steintúni en síðan í Höfn, Bakkafirði.
Þórarinn tók mikilli tryggð við Steintún og kenndi sig við staðinn. Skólagangan varð ekki löng, því þá var í sveitinni aðeins um að ræða stopula farkennslu. Hann mun hafa verið einn vetur í unglingaskóla á Vopnafirði og einn vetur í gagnfræðaskólanum á Akureyri. Þórarinn var sagður hafa verið mjög vel greindur, námsfús og bókelskur og sjálfsmenntun hans hafi gefið honum drjúgan hlut. Hann las mikið alla sína ævi.
Þórarinn kvæntist árið 1926 Sigurbjörgu Sigurðardóttur og eignuðust þau 9 börn. Þrjú dóu í æsku og tvö dóu uppkomin. Auk þess ólst upp hjá þeim hjónum dóttursonur þeirra, Þórarinn Sveinn Thorlacius. Sigurbjörg og Þórarinn bjuggu fyrstu árin í Höfn, Bakkafirði en lengst af í Steintúni eða allt til ársins 1956. Þá brugðu þau búi vegna heilsubrests Þórarins og fluttust til Reykjavíkur.
Þórarinn gaf út þrjár kvæðabækur, Útfall árið 1964, Litir í laufi árið 1966 og Undir felhellum árið 1970, auk þess Sýnishorn af úrvals ljóðum 48 Norðurlandahöfunda, sem hann kallaði "tilraun til þýðingar". Meginstef í ljóðum hans er náttúrlýsing og ást á landi og tungu. Útgáfu sína kostaði hann sjálfur. Þórarinn vann einnig að skrásetningu örnefna á Langanesströnd, sem og nafna áá og fiskimiða á Bakkafirði. Þórarinn lést 6. ágúst 1978. (www.langanesstrond.is)



Um bókina
Útg. af höfundi í Reykjavík 1964.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Útfall # 80014
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce