Bókin
My Account  |  Cart Contents  |  Checkout   
  Ítarleit
  Top » Catalog » Arnrún frá Felli »

Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New? more
Gullregn úr ljóðum Guðmundar Friðjónssonar # 80913
Gullregn úr ljóðum Guðmundar Friðjónssonar # 80913
3.900 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us

Margs verða hjúin vís # 75720   [Forlagsband]
Arnrún frá Felli

Margs verða hjúin vís # 75720
Our Price: 2.900 kr.
  
When dispatched: 1-3 dagar, að jafnaði.
Language: Íslenska
Condition: Gott eintak.
Product no.: #75720
   



Contents:
Margs verða hjúin vís. Sögur eftir Arnrúnu frá Felli.
Margs verða hjúin vís er eina bók Arnrúnar frá Felli.
Arnrún frá Felli var skáldanafn Guðrúnar Tómasdóttur sem fæddist í Mýrarsýslu 1886 og ólst þar upp til 19 ára aldurs. Þá flutti hún til Reykjavíkur og hóf ljósmóðurnám, en slíkt nám var ein af fáum leiðum sem opnar voru konum til menntunar á þeim tíma. Veturinn 1907-8 stundaði hún framhaldsnám í hjúkrun í Kaupmannahöfn og starfaði þar sem ljósmóðir næsta vetur. Hún snéri aftur til Íslands og réði sig í starf embættisljósmóður á Ísafirði og gegndi því starfi í níu ár, 1909-1917. Á þeim árum fékkst hún mikið við ljóðagerð en einnig birti hún smásögur í dagblöðum og tímaritum, t.d. í Eimreiðinni og Iðunni. Fæst ljóða hennar hafa birst á prenti.
1917 fór Guðrún til Vesturheims og mun ætlun hennar hafa verið að dvelja þar aðeins í skamma hríð en kynntist þar, Karli Friðriki Bjarnasyni sem var doktor í málvísindum og starfaði sem prófessor við Harvard. Þau giftu sig árið 1918 og bjuggu í Bandaríkjunum til æviloka. Aðalstarfi Guðrúnar um þriggja áratuga skeið var að vélrita fyrirlestra og rannsóknir eiginmanns síns. Sú vinna hefur vafalaust veitt henni mikla innsýn í málvísindi, hún hafði mikla þekkingu á tungumálum, talaði auk íslensku, ensku og norðurlandamála, þýsku, frönsku og spænsku. Vegna starfs eiginmannsins bjuggu þau um tíma bæði í Þýskalandi og Frakklandi.
Sögur og ljóð eftir Guðrúnu/Arnrúnu birtust víða í tímaritum en aðeins ein bók eftir hana var gefin út, smásagnasafnið Margs verða hjúin vísari. Þar eru 13 sögur sem eru með fyrstu Reykjavíkursögum íslenskra bókmennta. Aðalpersónur flestra sagnanna eru ungar, fjörmiklar stúlkur og má segja að um nýja kvenmynd sé að ræða. Guðrún skrifaði stíl sem samsvarar vel sögusviði og efni. Hún notar „nýtískulegt“ málfar með orðatiltækjum og slettum úr borgarmáli. Hún nær upp hraða í frásögn með því að sleppa smáorðum og tengingum, t.d. í samtölum. Frásagnarmáti hennar er víða gamansamur, jafnvel þótt efnið sé „háalvarlegt“.
Guðrún lést árið 1972 á Cambridge-sjúkrahúsinu í Massachusetts en hafði þá verið ekkja síðan árið 1949. Í minningu hennar orti skáldkonan Steingerður Guðmundsdóttir ljóðið „Til Ljósu“ (www.skald.is)



Product details:
Reykjavík. Ísafoldarprentsmiðja, 1956.

Reviews

Notifications more
Notify me of updates to Margs verða hjúin vís # 75720
Tell A Friend
 
Tell someone you know about this product.
Reviews more
Write a review on this product!
Languages
Icelandic English
 

Copyright © 2003 osCommerce
Powered by osCommerce

osCommerce