Contents: Kvæði Eggerts Olafssonar. Útgefin eptir þeim beztu handritum er feingizt gátu. Ljósprent eftir frumútgáfunni frá Kaupmannahöfn, 1832.
Eggert Ólafsson (1. desember 1726 - 30. maí 1768) var skáld, rithöfundur og náttúrufræðingur úr Svefneyjum á Breiðafirði. Hann var einn boðbera upplýsingarinnar á Íslandi. Rannveig systir Eggerts var kona séra Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal. Eggert nam náttúruvísindi við Hafnarháskóla, og lagði auk þess stund á fornfræði, málfræði, lögfræði, lögspeki og búfræði.
Eggert ritaði um ýmis efni, sem ekki hefur allt verið gefið út. Hann er og talinn frumkvöðull að því að semja samræmdar réttritunarreglur, en þær reglur eru fremur ólíkar þeim sem við fylgjum í dag. Einnig er hann talinn vera mesti málverndarsinni 18. aldar auk þess að vera þjóðræktarmaður.
Eggert fór í rannsóknarferðir um Ísland með Bjarna Pálssyni, síðar landlækni, á árunum 1752-1757. Í þessari ferð könnuðu þeir náttúru landsins en einnig almennt ástand þess og gerðu tillögur til úrbóta. Á veturna sat hann í Viðey hjá Skúla Magnússyni landfógeta - líkt og Árni Magnússon hafði hálfri öld áður setið í Skálholti milli ferða sinna um landið. Eggert samdi síðan ferðabók þeirra félaga á dönsku og kom hún út árið 1772. Tveimur árum síðar kom bókin út á þýsku, á frönsku árið 1802 og hlutar hennar á ensku 1805. Á íslensku kom hún út árið 1942.
Eggert drukknaði á Breiðafirði árið 1768, ásamt konu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Voru þau á leið heim úr vetursetu í Sauðlauksdal. Þegar Eggert Ólafsson fór seinast frá Sauðlauksdal, 29. maí 1768, söng séra Björn Halldórsson hann úr hlaði að fornum sið, með kveðjuávarpi sem hann hafði ort:
Far nú, minn vin, sem ásatt er
auðnu og manndyggðabraut,
far nú, þótt sárt þín söknum vér,
sviftur frá allri þraut.
Far í guðs skjóli, því að þér
þann kjósum förunaut.
Farðu blessaður, þegar þver
þitt líf, í drottins skaut.
|