Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Guðmundur Haraldsson »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Útfall # 80014
Útfall # 80014
6.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Nútíma mannlíf og kvæðin. II. # 27242   [Forlagsband]
Guðmundur Haraldsson

Nútíma mannlíf og kvæðin. II. # 27242
Verð: 9.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak. Áritað af skáldinu.
Vörunúmer: #27242
   



Innihald
Nútíma mannlíf og kvæðin. II. Frásagnir og kvæði eftir Guðmund Haraldsson.

Guðmundur Haraldsson fæddist í Merkisteini á Eyrarbakka 4. maí 1918. Foreldrar hans voru Haraldur Guðmundsson frá Stóru-Háeyri á Eyrarbakka, afkomandi Þorleifs ríka á Háeyri, og kona hans, Þuríður Magnúsdóttir frá Árgilsstöðum í Rangárþingi. Guðmundur var sjómaður og verkamaður til rúmlega fimmtugs, en gerðist þá rithöfundur og gaf út margvísleg rit með þáttum, frásögnum og kvæðum. Guðmundur Haraldsson lést í Reykjavík 1995.

Guðmundur Haraldsson skáld.

EINN af vorum minnstu bræðrunum – í andanum, Guðmundur Haraldsson frá Stóru-Háeyri á Eyrarbakka, hefur þreyttur lokið göngu sinni um rökkurheima Reykjavíkur.
Hann var alla ævi sína örsnauður alþýðumaður, eignaðist ekki svo mikið sem kaffikönnu um dagana og vann framundir fimmtugt sem byggingaverkamaður, togarasjómaður í Hvítahafinu, teppabankari og eyrarkarl.
En síðustu 25 ár ævinnar setti hann saman afar sérstæða og undirfurðulega prósatexta og atómkveðskap, sem vöktu athygli ýmissa samtíðarmanna hans vegna stórhreinlegs naívisma, sem lýsti upp skrif hans.
Sjálfur sagðist Guðmundur vera „sagnahöfundurinn, – eða svona skáld til að yrkja afmælisvísurnar". Notkun hans á ákveðnum greini í íslenzku gæti orðið rannsóknarefni málvísindamanna framtíðarinnar.
Rannsóknir Guðmundar Haraldssonar á mannlífinu fóru fram í strætisvögnum, rútu- og boddýbílum víðsvegar um landið, á matsölu og kaffíhúsum, jafnvel í veitingatjöldum og á sveitabæjum og í þorpum, þó aðallega á Eyrarbakka og einu sinni að minnsta kosti fór hann með Gullfossi til Kaupmannahafnar og Hamborgar og hann greindi frá skynjan sinni og upplifan á mannlífinu í smábókum, sem engum datt í hug að gefa út – nema honum sjálfum, með örfáum undantekningum þó.
Alla ævi var þessi látni reikunarmaður mjög kirkjurækinn og söngglaður, hann hafði lítinn áhuga á mannvirðingum viðmælenda sinna og enn minni áhuga á ávirðingum manna. Snöggur og snarborulegur fetaði hann lífsgönguna, einn og sjálfum sér nægur, en ýmsir urðu til að rétta honum lítilræði um dagana, því hann var háttvís maður og tók ofan hatt sinn, þegar hann mætti eldri konum á göngunni.
Hin síðari ár varði Guðmundur sagnahöfundur öllu sjálfsaflafé sínu jafnóðum til almannaþarfa.
Það er þó ekki við hinn látna að sakast, hvernig landsfeðurnir hafa ráðskast með opinbera fjármuni.
Líf Guðmundar Haraldssonar sagnahöfundar leið um dal og hól án þess að hann nokkru sinni léti illt af sér leiða. Þegar hann kvaddi viðmælendur á mannamótum eða gatnamótum, mælti hann jafnan: „A-allt í haginn."
Blessuð sé minningin um Guðmund Haraldsson og líf hans.
Bragi Kristjónsson bóksali.

Morgunblaðið 11. maí 1995.



Um bókina
Reykjavík. Gefið út á kostnað höfundar, 1974. 100 s. : mynd ; 22 sm.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Nútíma mannlíf og kvæðin. II. # 27242
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce