Innihald Afkastamikill mannvinur. Starfssaga séra Sigurbjörns Á. Gíslasonar. Jón Kr. Ísfeld tók saman og skrásetti. Sigurbjörn fćddist í Glćsibć í Sćmundarhlíđ 1.1. 1876, sonur Gísla Sigurđssonar, bónda ţar og í Neđra-Ási í Hjaltadal, og Kristínar Björnsdóttur húsfreyju.
Eiginkona Sigurbjörns var Guđrún, alţm. og rithöfundur, dóttir Lárusar H. Halldórssonar, prófasts, alţm. og fríkirkjuprests í Reykjavík, og k.h., Kristínar Katrínar Pétursdóttur Guđjohnsen húsfreyju.
Sigurbjörn og Guđrún bjuggu ađ Ási viđ Ásvallagötu í Reykjavík en Guđrún fórst af slysförum, ásamt tveimur dćtrum ţeirra hjóna er bifreiđ rann út í Tungufljót 1938.
Međal barna Sigurbjörn og Guđrúnar voru Lárus, borgarminjavörđur og öđrum fremur stofnandi Árbćjarsafnsins; Gísli, forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar, og Friđrik, stórkaupmađur í Reykjavík.
Sigurbjörn lauk stúdentsprófum frá Lćrđa skólanum í Reykjavík 1897, embćttisprófi í guđfrćđi frá Prestaskólanum áriđ 1900 og fór víđa um heim til ađ kynna sér trúmála- og líknarstörf. Hann starfađi ađ kristindómsmálum alla tíđ, sinnti barnaguđţjónustum guđfrćđinema 1897-1900 og síđar sunnudagaskólastarfi í Reykjavík í fjóra áratugi. Hann ferđađist um landiđ í 30 sumur til ađ vekja áhuga á kristilegu sjálfbođastarfi, kenndi viđ Kvennaskólann, Barnaskóla Reykjavíkur, Ćskulýđsskólann, Kennaraskóla Íslands, Verslunarskóla Íslands og Vélstjóraskóla Íslands. Hann stofnađi, ásamt Gísla, syni sínum, Elli- og hjúkrunarheimiliđ Grund og var heimilisprestur ţar frá 1942 og til ćviloka.
Sigurbjörn var ritstjóri kristilegra tímarita og sinnti ótal trúnađarstörfum fyrir bindindishreyfinguna, kristnibođ og á sviđi líknarmála. Hann var formađur sóknarnefndar Dómkirkjunnar í 30 ár, sat í framkvćmdanefnd Stórstúku Íslands, var stjórnarformađur Sambands íslenskra kristnibođsfélaga og formađur Barnaverndarráđs. Hann hlaut margvíslega viđurkenningu frá íslenskum og erlendum félagasamtökum.
|