Minn aðgangur
|
Skoða körfu
|
Ganga frá pöntun
Ítarleit
Forsíða
»
Vörulisti
»
Haraldur Níelsson
»
Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt!
Milli Grænlands köldu kletta # 81707
2.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband
Það er yfir oss vakað # 55110
[Forlagsband]
Haraldur Níelsson
Verð:
1.900 kr.
Afgreiðslutími:
1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál:
Íslenska
Ástand:
Gott eintak.
Vörunúmer:
#55110
Innihald
Það er yfir oss vakað. Valdir kaflar úr ræðum séra Haralds Níelssonar, prófessors. Með inngangi eftir dr. Pétur Pétursson.
Séra Haraldur Níelsson hafði mikil áhrif á þjóð sína sem fyrirlesari og predikari. Vegna afskipta sinna af spíritisma og sálarrannsóknum varð hann einn umdeildasti maður síns tíma. Hann sannfærðist um raunveruleika svokallaðra miðlafyrirbæra og dró af þeim ályktanir í umfjöllun sinni um stöðu og hlutverk kristinnar trúar í samtímanum. Haraldur tók til endurskoðunar ýmsar erfikenningar kirkjunnar og beitti víðtækri biblíuþekkingu sinni til að slá vopnin úr höndum andstæðinga sinna. Þær deilur sem af þessu spruttu urðu harðar og langvinnar og eiga sér vart hliðstæðu í trúarsögu þjóðarinnar. Því hefur verið haldið fram að hjarta íslensku þjóðkirkjunnar hafi brostið í þessum átökum. Andstæðingar hans vildu gera hann rækan úr kirkjunni og fannst það óhæfa að hann væri kennari prestefna. Fylgjendur hans höfðu aftur á móti mikið dálæti á honum svo við lá persónudýrkun. Árið 1914 hóf séra Haraldur að predika annan hvorn sunnudag í Fríkirkjunni í Reykjavík og var kirkjusóknin með eindæmum góð svo oft urðu margir frá að hverfa. Í þessari bók er að finna tuttugu og fimm predikanir eftir séra Harald. Nítján þeirra hafa áður birst á prenti, flestar í predikunarsöfnum hans, sem eru nú fyrir löngu ófáanleg. Ræðurnar eru flestar styttar þannig að ýmsu í heimfærslu predikunartextanna sem skírskortar til málefna þess tíma sem þær voru fluttar á er sleppt. Einnig er því sleppt sem ekki tengist beinlínis meginþema predikunarinnar og er augljóslega fremur til uppfyllingar. Lögð er áhersla á að meginhugsun predikananna komist til skila og það kemur í ljós að Haraldur stendur í boðun sinni á klassískum grunni kristninnar. Það á einkum við um kristsfræði hans og sköpunarguðfræði. Predikun Haralds á enn erindi við landsmenn og tímabært að endurmeta guðfræði hans og áhrif á íslensku kirkjuna. Dr. Pétur Pétursson ritar inngang að bókinni.
Um bókina
Reykjavík. Háskólaútgáfan, 1990.
Tilkynningar
Látið mig vita um breytingar á:
Það er yfir oss vakað # 55110
Segðu vini frá
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir
Skrifa umsögn
Tungumál
09/11/2024
Bókin
©
bokin@simnet.is