Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Hannes Pétursson »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Vejledning til det islandske eller gamle nordiske sprog # 79883
Vejledning til det islandske eller gamle nordiske sprog # 79883
29.500 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Eldhylur # 67757   [Forlagsband, kápa]
Hannes Pétursson

Eldhylur # 67757
Verð: 3.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #67757
   



Innihald
Eldhylur. Ljóð eftir Hannes Pétursson.
Fyrir Eldhyl hlaut Hannes Íslensku bókmenntaverðlaunin.

Klukkukvæði (hluti)

Fyrir langalöngu reið ferðamaður einn um veg. Það var á sumri. Hann kom í fornan eyðidal. Þá hafði sól sigið til fjalla. Hann steig af baki hesti sínum og lagðist til svefns í móalaut hjá reiðgötunni. Um nóttina dreymdi hann draum: Honum þótti sem hann legði hlustir fast að jörðu þar í mónum og væri þá talað til sín skýrum rómi. Ekki gat hann áttað sig á því, hvort röddin barst neðan frá, þar sem hann var staddur, ellegar úr annarri átt, en það heyrði hann þó fyrir víst, að hún kom til hans úr jörðu. Hann mundi, þegar hann vaknaði, hvað við hann hafði verið mælt og fór með það stöku sinnum fyrir aðra síðar á lífsleiðinni. Í draumnum heyrði hann sagt - eftir því sem nú er kunnugt: Um langa tíð hef ég legið í þessari mold. Ég var lögð undir kjarald, gisið búsáhald til geymslu millum árstíða. Annað veifið kom einhver hönd sem lyfti mér úr jörð og hringdi mér, svo hamrarnir undir tóku . . . hönd, hönd sem vissi hversu ég er gjörð: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan! Ég nam á þeim stundum, stopulum, ofar mold hvern styrk minn gamli hljómur veitir - og frið er illvættir, jafnt úr austri og vestri, höggva óttafullar sálir sem strá í tvennt. Ég, verndarklukka, kunngjörði hátt yfir dalinn það kall sem er skýrum stöfum í mig brennt: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan! Ég nam á þeim stundum, stopulum, ofar mold stjarft auga, hlust sem titrar við og kné sem skelfur, þegar alþekkt umhverfi gerist ógnvænt snögglega, líkt og Djöflinum selt. Ég, verndarklukka, kunngjörði hátt yfir dalinn það kall sem var í málmsteypu mína fellt: Vox mea est bamba. Possum depellere Satan!



Um bókina
Reykjavík. Iðunn, 1993.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Eldhylur # 67757
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce