Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Ljóð og rímur. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Gisp ! Myndasögublaðið nr. 5. # 79820
Gisp ! Myndasögublaðið nr. 5. # 79820
6.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Kvæði Eggerts Olafssonar # 79708   [Innbundin]
Eggert Ólafsson

Kvæði Eggerts Olafssonar # 79708
Verð: 69.500 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Nokkuð gott eintak í samtímabandi.
Vörunúmer: #79708
   



Innihald
Kvæði Eggerts Olafssonar. Útgefin eptir þeim beztu handritum er feingizt gátu.
Gott eintak í ágætu skinnbandi. Mikið fágæti.

Eggert Ólafsson (1. desember 1726 - 30. maí 1768) var skáld, rithöfundur og náttúrufræðingur úr Svefneyjum á Breiðafirði. Hann var einn boðbera upplýsingarinnar á Íslandi. Rannveig systir Eggerts var kona séra Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal.
Eggert nam náttúruvísindi við Hafnarháskóla, og lagði auk þess stund á fornfræði, málfræði, lögfræði, lögspeki og búfræði.
Eggert ritaði um ýmis efni, sem ekki hefur allt verið gefið út. Hann er og talinn frumkvöðull að því að semja samræmdar réttritunarreglur, en þær reglur eru fremur ólíkar þeim sem við fylgjum í dag. Einnig er hann talinn vera mesti málverndarsinni 18. aldar auk þess að vera þjóðræktarmaður.
Eggert fór í rannsóknarferðir um Ísland með Bjarna Pálssyni, síðar landlækni, á árunum 1752-1757. Í þessari ferð könnuðu þeir náttúru landsins en einnig almennt ástand þess og gerðu tillögur til úrbóta. Á veturna sat hann í Viðey hjá Skúla Magnússyni landfógeta - líkt og Árni Magnússon hafði hálfri öld áður setið í Skálholti milli ferða sinna um landið. Eggert samdi síðan ferðabók þeirra félaga á dönsku og kom hún út árið 1772. Tveimur árum síðar kom bókin út á þýsku, á frönsku árið 1802 og hlutar hennar á ensku 1805. Á íslensku kom hún út árið 1942.
Eggert drukknaði á Breiðafirði árið 1768, ásamt konu sinni Ingibjörgu Guðmundsdóttur. Voru þau á leið heim úr vetursetu í Sauðlauksdal. Þegar Eggert Ólafsson fór seinast frá Sauðlauksdal, 29. maí 1768, söng séra Björn Halldórsson hann úr hlaði að fornum sið, með kveðjuávarpi sem hann hafði ort:

Far nú, minn vin, sem ásatt er
auðnu og manndyggðabraut,
far nú, þótt sárt þín söknum vér,
sviftur frá allri þraut.
Far í guðs skjóli, því að þér
þann kjósum förunaut.
Farðu blessaður, þegar þver
þitt líf, í drottins skaut.



Um bókina
Kaupmannahöfn 1832. Prentud hjá S. L. Möller.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Kvæði Eggerts Olafssonar # 79708
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce