Minn aðgangur
|
Skoða körfu
|
Ganga frá pöntun
Ítarleit
Forsíða
»
Vörulisti
»
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
»
Skáldsögur eptir konur
»
Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt!
Bjarni Vilhjálmsson. In Memoriam # 81706
3.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband
Sólin og skugginn # 58325
[Forlagsband, kápa]
Fríða Á. Sigurðardóttir
Verð:
1.900 kr.
Afgreiðslutími:
1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál:
Íslenska
Ástand:
Gott eintak.
Vörunúmer:
#58325
Innihald
Sólin og skugginn. Skáldsaga eftir Fríðu Á. Sigurðardóttir.
Lífið í heimi kolkrabbahússins gekk sinn skipulega gang. Sigrún byrjaði á nýjum lyfjum. Gugga fór enn í geislana sem áttu að koma í veg fyrir nýtt heilaæxli og eyða hættulegum frumum. Olga hélt áfram í rannsóknum og Halldóra var hér enn. Og alltaf var verið að skipta um sjúklinga í rúmi Guðrúnar gömlu.
Allt gekk sinn vanagang.
Samt var ekkert eins og áður.
Alltaf öðru hvoru fór kuldahrollur um Sigrúnu í hitanum í Z-3.
Kannski var hún bara að fá flensu? Eða kvef? Hún var alltaf svo slöpp.
Auðvitað var þetta bara kvef.
Hún átti orðið erfitt með svefn. Vakti og hlustaði á hljóð næturinnar í heimi kolkrabbans.
“Góðan dag,” sagði hún syfjulega eftir eina slíka nótt. Hún leit í kringum sig og sá að Olga, Gugga og Rósa, konan í rúmi Guðrúnar, voru farnar fram. Birna og Nanna voru að búa um rúmin.
“Daginn,” sagði Birna hressilega. Nanna umlaði eitthvað. Hún var greinilega syfjuð líka. “Klukkan er orðin átta.”
“Ó, nú man ég. Vagninn – ungi maðurinn – hann dó í nótt. Var það ekki?" spurði Sigrún umhugsunarlaust. “’Eg sá inn í stofuna til hans í gærkvöldi. Hann sem var svo ungur – “
Birna og Nanna létu sem þær heyrðu ekki til hennar. Þær flýttu sér að rúmi Halldóru og byrjuðu að klæða hana úr. Tóku fram hrein föt handa henni. “Úr hverju dó hann?” hélt Sigrún áfram utan við sig.
Stúlkurnar luku við að klæða Halldóru, lyftu henni svo fram úr og færðu hana í hjólastólinn. Birna fór að segja henni frá því hvað veðrið væri andstyggilegt.
“Hvað er eiginlega að ykkur, stelpur?” spurði Sigrún undrandi og var nú allt í einu glaðvöknuð. “Af hverju svariðið manni ekki?”
“Ha?” sagði Birna. “Svörum ekki? Hvað meinarðu?”
“Ungi maðurinn...”
“Hvaða ungi maður?”
“Sá sem lá hérna við hliðina...”
“Nú, hvað með hann?”
“Ég spurði bara úr hverju hann hefði dáið,” sagði Sigrún þreytulega og bjó sig til að fara fram úr. “En það skiptir svo sem engu máli.”
“Þú þarft ekkert að verða fúl – maður bara – ja, maður má bara ekki tala um svoleiðis," sagði Birna ergilega eftir stutta þögn. “Það er ekki venja að – að –“ “Má ekki tala?” endurtók Sigrún hissa. “Hvað áttu við?”
“Þú veist vel hvað ég á við. Það bara má ekki tala um – um –“ Birna þagnaði.
“Um dauðann? Á sjúkrahúsi?” Sigrún skellti upp úr. “Hvers vegna í ósköpunum ekki?”
“Það eyðileggur móralinn. Hefur vond áhrif –“
“Á hvern?”
“Á ykkur auðvitað.”
Um bókina
Hafnarfjörður. Skuggsjá, 1981.
Tilkynningar
Látið mig vita um breytingar á:
Sólin og skugginn # 58325
Segðu vini frá
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir
Skrifa umsögn
Tungumál
06/11/2024
Bókin
©
bokin@simnet.is