My Account
|
Cart Contents
|
Checkout
Ítarleit
Top
»
Catalog
»
Ævisögur og endurminningar.
»
Stjórnmálamenn
»
Categories
Afmælisrit.
Hobbies.
Autographed books. Ex Libris
Childrenbooks.
Books on Books.
Farmers.
One Book Authors.
Rare Books.
Travel Books.
Social sciences and humanities.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Finance - Business.
Halldór Kiljan Laxness.
Health and lifestyle.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Sports. Chess.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Plays.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Law and order.
Food and Drinks.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Magazines. News Papers.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Books in English.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
What's New?
Die Eidbrüder # 81894
9.500 kr.
Information
Shipping & Returns
Privacy Notice
Conditions of Use
Contact Us
Æfisaga Gizurar Þorvaldssonar # 44229
[Innbundin]
Jón Þorkelsson
Our Price:
29.500 kr.
When dispatched:
1-3 dagar, að jafnaði.
Language:
Íslenska
Condition:
Gott eintak í góðu skinnbandi. Þessi er sjaldan á ferðinni.
Product no.:
#44229
Contents:
Æfisaga Gizurar Þorvaldssonar. Samin af Jóni Þorkelssyni.
Gissur Þorvaldsson (1208 – 1268), oft nefndur Gissur jarl, var íslenskur höfðingi á Sturlungaöld. Hann var af ætt Haukdæla, sonur Þorvaldar Gissurarsonar í Hruna og Þóru yngri Guðmundsdóttur, konu hans. Hann tók ungur við Haukdælagoðorði, varð helsti foringi Sunnlendinga og gerði bandalag við Kolbein unga, leiðtoga Ásbirninga í Skagafirði, gegn Sturlungum. Unnu þeir sigur á liði Sturlunga í Örlygsstaðabardaga 1238 og urðu við það valdamestu höfðingjar landsins, ekki síst eftir að Gissur lét drepa Snorra Sturluson 1241 að kröfu Hákonar Noregskonungs.
Gissur hafði gerst lénsmaður konungs og eins var um Þórð kakala Sighvatsson, sem var helsti höfðingi af ætt Sturlunga sem eftir lifði. Eftir Haugsnesbardaga 1246, þar sem Þórður vann sigur á Ásbirningum, héldu þeir Gissur og Þórður til Noregs um haustið og skutu máli sínu til konungs, sem úrskurðaði Þórði í vil og kyrrsetti Gissur í Noregi. Var hann sýslumaður í Þrándheimi næstu árin en fór þó í suðurgöngu til Rómar 1248. Þórður fór heim og var nær einráður á Íslandi næstu árin en 1250 kallaði konungur hann út aftur og nú var það hann sem var kyrrsettur. Gissur fór aftur á móti heim 1252 ásamt Þorgils skarða Böðvarssyni og átti að reyna að koma landinu undir veldi Noregskonungs. Hann vildi reyna að sættast við óvini sína en þeir voru ekki allir sama sinnis og haustið 1253 gerðu þeir aðför að honum á Flugumýri í Skagafirði, þar sem hann var þá sestur að, og reyndu að brenna hann inni. Gissur slapp úr Flugumýrarbrennu með því að fela sig í sýrukeri en missti alla fjölskyldu sína.
Konungur stefndi honum aftur til Noregs 1254 því að honum þótti seint ganga að koma Íslandi undir krúnuna. Gissur sneri aftur heim með jarlsnafnbót en varð ekkert ágengt og það var ekki fyrr en 1262 sem Íslendingar gengu Noregskonungi á hönd og samþykktu Gamla sáttmála, sem stundum var nefndur Gissurarsáttmáli. Hann átti í nokkrum erjum eftir að heim kom, einkum við Oddaverjann Þórð Andrésson, sem hann lét drepa 27. september 1264. Þar lýkur Sturlungu og er fátt vitað um síðustu ár Gissurar, sem þá bjó á Stað í Reynisnesi (Reynistað) og lést 12. janúar 1268. Hann mun hafa áformað að ganga í klaustur en lifði ekki svo lengi; gaf þó Reynistað til stofnunar nunnuklausturs fyrir dauða sinn.
Fyrri kona Gissurar, sem hann giftist 1224 þegar bæði voru 15-16 ára var Ingibjörg, dóttir Snorra Sturlusonar, og áttu þau einn son sem dó ungur. Þau skildu. Fylgikona Gissurar, sem hann kvæntist loks 1252, var Gróa Álfsdóttir og áttu þau synina Hall og Ísleif en einnig átti Gissur soninn Ketilbjörn. Gróa og synirnir þrír fórust öll í Flugumýrarbrennu. Eftir brennuna tók Gissur sem frillu Ingibjörgu Gunnarsdóttur frá Geitaskarði í Langadal og unni henni brátt mikið. Talið er að þau hafi eignast eina dóttur, Þóru.
Product details:
Reykjavík. Prentuð á kostnað Prentsmiðjunnar af Einari Þórðarsyni 1868.
Notifications
Notify me of updates to
Æfisaga Gizurar Þorvaldssonar # 44229
Tell A Friend
Tell someone you know about this product.
Reviews
Write a review on this product!
Languages
11/19/2024
Copyright © 2003
osCommerce
Powered by
osCommerce