Bókin
Minn aðgangur  |  Skoða körfu  |  Ganga frá pöntun   
  Ítarleit
  Forsíða » Vörulisti » Ljóð og rímur. » Helgikvæði. Sálmar. »

Flokkar
Afmælisrit.
Áhugamál.
Áritaðar bækur. Bókmerki.
Barna- og unglingabækur.
Bækur um bækur og bókamenn.
Bændur og búalið.
Einnar bóka höfundar.
Fágætar bækur.
Ferðabækur. Um lönd og lýði.
Félags- og hugvísindi.
Gunnar Gunnarsson.
Goðafræði Grikkja og Rómverja.
Hagfræði - Viðskipti.
Halldór Kiljan Laxness.
Heilsa og lífsstíll.
Héraðssaga.
Íslandssaga.
Íslendingasögur.
Íslenzk og norræn fræði.
Íþróttir og leikir.
Jóhannes Sveinsson Kjarval.
Jólabækur Ísafoldar.
Kenslubækur - Skólamál.
Leikrit.
Listir og ljósmyndun.
Ljóð og rímur.
Lærdómsrit Bókmenntafélagsins.
Lögfræði. Lög og regla.
Matur og drykkur.
Málfræði. Málvísindi - Orðabækur
Náttúrufræði - Landafræði.
Riddarasögur.
Ritgerðir, ræður og bréf.
Ótrúlega litlar bækur.
Sagnfræði. Saga lands og heims.
Skáldverk eftir íslenzka höfunda
Skáldverk, þýdd.
Sérprent úr Bókum, Blöðum og Tím
Skuggi.
Stjórnmál og stjórnsýsla.
Tímarit - Dagblöð.
Tónlist - Hljómplötur - Nótur.
Trúmál og andleg málefni.
Teiknimyndasögur.
Vesturheims prent.
Vísindi og tækni.
Þjóðhættir-Þjóðlegur fróðleikur.
Þjóðsögur og ævintýri.
Þórbergur Þórðarson
Ættfræði - Stéttatal.
Ævisögur og endurminningar.
Bækur á Ensku.
Bækur á ýmsum tungumálum.
Ýmislegt skrítið og skemmtilegt
Gjafabréf Bókarinnar.
Nýtt! meira
Stattu þig drengur # 79901
Stattu þig drengur # 79901
3.900 kr.
Upplýsingar
Sendingarmáti
Persónuupplýsingar
Um okkur
Hafðu samband

Lilja # 68854   [Innbundin]
Eysteinn Ásgrimsson

Lilja # 68854
Verð: 4.900 kr.
  
Afgreiðslutími: 1-3 dagar, að jafnaði.
Tungumál: Íslenska
Ástand: Gott eintak.
Vörunúmer: #68854
   



Innihald
Lilja. Ljóð eftir Eystein Ásgrímsson. Finnur Jónsson bjó til prentunar.
Úr bókaflokknum - Íslensk smárit handa alþýðu.

Eysteinn Ásgrímsson (d. 14. mars 1361) var íslenskur munkur og skáld á 14. öld. Hann tilheyrði Ágústínusarreglu og var fyrst í Þykkvabæjarklaustri. Um ætt hans og uppruna er ekki vitað. Hann virðist hafa verið breyskur og uppivöðslusamur framan af og er talið að hann hafi verið einn þeirra þriggja munka sem Jón Sigurðsson Skálholtsbiskup lét handtaka og setja í járn í klaustrinu haustið 1343. Þeir höfðu barið Þorlák ábóta og hrakið hann burt, orðið berir að saurlífi og jafnvel barneignum.
Nokkru síðar virðist Eysteinn hafa gert yfirbót og sátt við biskup því hann var gerður að officialis í Helgafellsklaustri 1349. Hann var seinna handgenginn Gyrði biskupi Ívarssyni og ferðaðist með honum í vísitasíuferðum 1353-1354. Árið 1355 fóru þeir saman til Noregs og kom biskup heim árið eftir en Eysteinn var tekinn í klaustrið í Helgisetri við Niðarós. Hann kom þó heim 1357 og þá í fylgd Eyjólfs Brandssonar kórsbróður. Þeir voru eins konar eftirlitsfulltrúar erkibiskupsins í Niðarósi. Þeir létu ýmis mál til sín taka og kom fljótt til árekstra á milli þeirra og Gyrðis biskups. Sagt er að Eysteinn hafi ort níð um biskup, sem bannfærði hann 1359.
Gyrðir ætlaði til Noregs sama ár að kæra þá fyrir erkibiskupi en áður en af því yrði sættust þeir. Virðist hafa farið vel á með þeim eftir það en báðir áttu skammt eftir. Þeir sigldu til Noregs hvor með sínu skipi; skipið sem biskup var á fórst í hafi en skipið sem Eysteinn var á kom að landi á Hálogalandi mjög seint um haustið eftir mikla hrakninga og voru allir um borð að þrotum komnir. Eysteinn komst loks í klaustrið í Helgisetri snemma árs 1361 og dó þar skömmu síðar.
Eysteinn er talinn hafa ort helgikvæðið Lilja og hefur þess verið getið til að það hafi annaðhvort verið ort þegar hann sat í járnum í Þykkvabæjarklaustri eða eftir að hann sættist við Gyrði biskup en ekkert er vitað um það með vissu.



Um bókina
Kaupmannahöfn. Bogi Th. Melsteð, 1913.

Umsagnir

Tilkynningar meira
Látið mig vita um breytingar á: Lilja # 68854
Segðu vini frá
 
Segðu einhverjum frá þessari vöru.
Umsagnir meira
Skrifa umsögn
Tungumál
Icelandic English
 

Bókin © bokin@simnet.is

osCommerce