Innihald Dagur við ský. Fólk í íslenskri flugsögu. Eftir Jónínu Michaelsdóttur. Ljósmyndir af viðmælendum Sigurgeir Sigurjónsson. Viðmælendur og sögumenn eru: - Lífið er stórkostlegt / Hjálmar Finnsson. - Kannski er ævintýrið rétt að byrja / Páll Þorsteinsson. - Leiftur frá liðnu vori / Erla Ágústsdóttir. - Mér hefur alltaf þótt gaman að vera til / Ingólfur Guðmundsson. - Við erum að keppa við allan heiminn / Davíð Vilhelmsson. - Fólkið í fluginu er mitt fólk / Guðrún Pétursdóttir. - Flugið var liður í sjálfstæðisbaráttunni / Grétar Br. Kristjánsson. - Hef alltaf verið heillaður af tækni / Bergur G. Gíslason. - Minnist þess ekki að hafa orðið hræddur / Kristinn Olsen. - Alþjóðaflugvöllur er heimur út af fyrir sig / Sigurður Stefánsson. Íslenska flugævintýrið hófst fyrir alvöru um svipað leyti og lýðveldið var stofnað og var samofið þeim anda frelsis sem ríkti með þjóðinni. Dagur við ský er um fólkið sem var á valdi þessa ævintýris og tók þátt í að skapa það. Viðmælendur Jónínu Michaelsdóttur eru Bergur Gíslason, Páll Þorsteinsson, Hjálmar Finnsson, Kristinn Olsen, Grétar Kristjánsson, Erla Ágústsdóttir, Guðrún Pétursdóttir, Ingólfur Guðmundsson, Davíð Vilhelmsson og Sigurður Stefánsson. Þetta er breiður hópur, almennir starfsmenn og yfirmenn, forstjórar, flugmenn, flugfreyjur. Þarna talar fólkið bak við flugið, segir frá lífi sínu og skoðunum, starfi og samstarfsfólki. (Bókatíðindi 2000).
|